Enn meiri rokkveisla: Goðsagnir rokksins í Edinborgarhúsinu á skírdag

Skrá nýjan viðburð


Rokkhundarnir eru mættir aftur með enn meiri 80's rokkveislu. Við keyrum upp stuðið fyrir páskana á Ísafirði með tónleikum í Edinborgarhúsinu á skírdag, 2. apríl. Nú tökum við fyrir goðsagnir rokksins og má búast við að heyra lög með stórstjörnum eins og Fleetwood Mac, Foreigner, Bryan Adams og Toto ásamt fjölda annarra. Ekki missa af þessu!
Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Miðaverð er 6.500 kr.

Miðasala

Fram koma:
Simbi Hjálmarsson, söngur
Hjördís Þráinsdóttir, söngur
Stefán Freyr Baldursson, gítar
Alfreð Erlingsson, hljómborð
Smári Alfreðsson, saxófónn, hljóðgervlar og slagverk
Þorsteinn Bragason, bassi
Haraldur Ringsted, trommur

Er hægt að bæta efnið á síðunni?