Búningurinn í bílinn - Þjóðbúningahátíð
Þjóðbúningaráðstefna og hátíðí Ísafjarðarbæ, 14.–16. ágúst 2026
Föstudaginn 14. ágúst verður móttaka ráðstefnugesta í Turnhúsinu klukkan 20:00.
Laugardaginn 15. ágúst opnar þjóðbúningasýning í Edinborgarhúsinu,
hátíðinn sett klukkan 11:00 í Edinborgarsal.
Þjóðbúningamyndataka í bæjarbrekkunni klukkan 13:00 - Fjölmennum öll og toppum síðustu hópmynd
Ráðstefna hefst klukkan 14:00 í Edinborgarsal. Meðal gesta á ráðstefnunni verður Guðni Th. Jóhannesson fyrrum forseta með erindi ásamt Hrefnu Róbertsdóttur, sagnfræðingi og þjóðskjalaverði.
Einnig verður þjóðbúningatískusýning og sölu- og kynnigabásar. Léttar veitingar í boði.
Þjóðbúningafélag Íslands, - Þjóðbúningafélagið Auður á sunnanverðum vestfjörðum, Þjóðbúningafélag Vestfjarða og þjóðbúningafélagið Pislaþytur í Skagafirði verða með erindi og kynningr á starfi sínu.
Laugardaginn 15. ágúst verður hátíðar kvöldverður í Tjöruhúsinu. Skráning og upplýsingar
hjá Margréti Skúladóttur 899 3628
Sunnudaginn 16. águst er haldið á Hrafnseyri
11:00 - Rúta fer frá Edinborgarhúsinu
Erindi Margrét Hrönn Hallmundardóttir, fornleifafræðingi og staðarhaldara á Hrafnseyri, skoðun um safnið, kaffi og hátíðarmessa í Hrafnseyrarkirkju. Rúta til baka klukkan 15:00
Dagskráin er opin og öllum að kostnaðarlasu. Verið velkomnir á lifandi og fræðandi menningarviðburð.