Alzheimersamtökin, heilabilun og samskipti
Alzheimersamtökin bjóða til opinnar fræðslu um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði(4. hæð) mánudaginn 8. júní kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis og öll áhugasöm velkomin.
Á fræðslufundunum verður starf Alzheimersamtakanna kynnt og fjallað um þær áskoranir sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi góðra samskipta, aukins skilnings og stuðnings við aðstandendur.
Fræðsluna heldur Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna.
Fundargestir fá aukinn skilning á breyttum aðstæðum, hagnýtar hugmyndir að bættum samskiptum og tækifæri til að fræðast og ræða málefni sem snerta marga.
Fræðslan er ætluð einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öllum öðrum sem vilja auka þekkingu sína.