Aldrei gaman á páskunum?!
3. mars kl. 20:00-21:00
Viðburðir á norðanverðum Vestfjörðum
Edinborgarhúsið, Ísafirði
Aldrei fór ég suður boðar til opins íbúafundar í sal Edinborgarhússins, þriðjudaginn 3. mars kl. 20.00. Þar munum við svipta hulunni af því tónlistarfólki og hljómsveitum sem skemmta munu á Aldrei fór ég suður hátíðinni í ár!
Einnig langar okkur að ræða við öll þau sem hafa áhuga á hvernig við gætum bætt páskana fyrir vestan og jafnvel breytt. Hvað er gott, hvað má bæta?
Óvænt tónlistaratriði.
Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Þið viljið ekki missa af þessu!
Er hægt að bæta efnið á síðunni?