20 ára afmælishátíð Víkinga á Vestfjörðum
28-29 júní
Viðburðir á norðanverðum Vestfjörðum
Þingeyri
20 ára afmælis-víkingahátíð Víkinga á Vestfjörðum verður haldin dagana 27, 28 og 29 júní næst komandi, á víkingasvæðinu á Þingeyri.
Opið verður fyrir almenning, eins og hér segir:
Laugardaginn 28 júní: kl 11:00 - 16:00
Sunnudaginn 29 júní: kl 11:00 - 15:00
Frekari upplýsingar um hvað verður um að vera á hátíðinni kemur inn þegar nær dregur.
Við minnum á að fæstir eru með posa, þannig að best er að hafa með sér pening í lausu ef að áhugi er að versla af handverksfólki á hátíðinni.
Nauðsynlegt er fyrir víkinga að skrá sig á hátíðina, hægt er að óska eftir skráningarformi í skilaboðum. Tekið verður við skráningum til miðnættis 13 júní.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?