Skiptimarkaður: plöntur og púsl
28 apríl - 3 maí
Viðburðir á norðanverðum Vestfjörðum
Bókasafnið Ísafirði
Skiptimarkaður fyrir plöntur og púsl verður í gangi alla vikuna á Bókasafninu. Komið með púsluðu púslin ykkar, plöntur eða afleggjara, skellið þeim á skiptimarkaðinn og takið eitthvað nýtt með ykkur heim 

Viðburðurinn er haldinn í tilefni Viku 17 og er markmiðið að stuðla að hringrásarhagkerfi og ábyrgri neyslu. Við hvetjum ykkur eindregið til þess að nýta skiptimarkaðinn í vorverkunum! 
----------------------------------------------
Vika 17 er alþjóðleg vika Heimsmarkmiðanna á bókasöfnum. Í tilefni vikunnar verða ýmsir viðburðir tengdir Heimsmarkmiðunum á dagskrá Bókasafnsins Ísafirði.
Nánari upplýsingar um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna má finna á www.heimsmarkmidin.is
Er hægt að bæta efnið á síðunni?