Samfylkingin: Opinn fundur um heilbrigðismál

Skrá nýjan viðburð


Opinn fundur um heilbrigðismál í Bryggjusal í Edinborgarhúsinu á Ísafirði! Fundurinn verður fimmtudaginn 25. maí kl. 20:00. Öllum er velkomið að koma með og taka þátt.
Á meðal gesta verða Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar og Arna Lára Jónsdóttir ritari flokksins og bæjarstjóri á Ísafirði. Fulltrúi úr stýrihópi flokksins um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu verður Anna Sigrún Baldursdóttir.
Ert þú með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu? Eða ertu almennur borgari sem vill sjá breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi? Þá viljum við fá þig með í samtalið 🌹
* * *
Samfylkingin stendur nú fyrir samræðum um heilbrigðismálum um land allt. Málefnastarf flokksins er með nýju sniði og heilbrigðismálin verða í forgrunni frá mars og fram á haust 2023. Vinnan hefst með hátt í fjörutíu opnum fundum með fólkinu í landinu. Á hverjum fundi verða fulltrúar úr stýrihópi Samfylkingarinnar um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu auk forystufólks flokksins, bæði á Alþingi og í sveitarstjórnum.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar leggur þunga áherslu á málefnastarfið og bindur miklar vonir við vinnuna sem nú er að hefjast: „Útkoman á að vera verklýsing fyrir næstu ríkisstjórn; forgangsröðun og skýr pólitík; verkefnalisti frá fyrstu 100 dögunum og upp í fyrstu tvö kjörtímabilin í ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar,“ sagði Kristrún í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi í vor.
Mætum til leiks!
Er hægt að bæta efnið á síðunni?