RÁÐSTEFNA - EYJAR OG FJÖLBREYTILEIKI: MENNING TUNGA OG MENNTUN
RÁÐSTEFNA - EYJAR OG FJÖLBREYTILEIKI: MENNING TUNGA OG MENNTUN
Eitt af einkennum eyja og afskekktra samfélaga er seigla, líffræðilegur fjölbreytileiki og menningarleg auðlegð. Ráðstefnan um eyjar og afskekkt samfélög verður haldin í Háskólasetri Vestfjarða í samstarfi við Háskóla Íslands og Árnastofnun, dagana 3.-5. október 2024. Markmiðið með ráðstefnunni er að beina athygli að mikilvægi eyja og afskekktra samfélaga sem eru í sífelldri þróun og er mikilvægt að rannsaka. Eyjar eru með sérstakt vistkerfi og samfélagsgerð og standa frammi fyrir einstökum áskorunum eins og áhrif loftslagsbreytinga og viðkvæmt jafnvægi sjálfbærrar þróunar. Eyjar og afskekkt samfélög gegna mikilvægu hlutverki í tengslum við alþjóðlega, vistfræðilega og menningarlega arfleið. Með þetta hlutverk í huga miðar þessi ráðstefna að því að kanna eyjasamfélög út frá þremur yfirgripsmiklum þemum: menningu, tungumáli og menntun. Ráðstefnan mun leiða saman þátttakendur með ólíkan bakgrunn og hvetja til þverfaglegrar umræðu til að koma auga á vannýtta möguleika eyja sem „rannsóknarstofur“ fyrir nýstárlegar rannsóknir, stefnumótun og eflingu samfélagsins. Á ráðstefnunni verða hringborðsumræður, málþing, vinnustofur og skapandi kynningar. Fyrir áhugasama er hægt að lesa meira um ráðstefnuna hér: https://www.uw.is/.../radstefna-eyjar-og-fjolbreytileiki...