Kynning á fræðslusjóðum - Súpufundur

Skrá nýjan viðburð


Mánudaginn 27. febrúar mun Kristín Njálsdóttir, framkvæmdastjóri Landsmenntar, Sveitamenntar, Ríkismenntar og Sjómenntar, kynna fræðslusjóðina og aðra fræðslusjóði atvinnulífsins. Kynntir verða möguleikar fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkisstofnana á styrkjum og endurgreiðslu vegna fræðslu starfsmanna.

Fundurinn verður haldinn í Bryggjusal Edinborgarhússins og hefst hann kl. 12:00.

Á fundinum verður boðið upp á súpu og brauð og er aðgangur ókeypis.

Fulltrúar fyrirtækja og stofnana sem sjá um endurmenntun starfsmanna eru hvattir til að koma og kynna sér hvaða möguleikar eru í boði á styrkjum og endurgreiðslu fyrir fræðslumál starfsmanna.

Viðburður á Facebook

Er hægt að bæta efnið á síðunni?