Helga Möller á Vagninum

Skrá nýjan viðburð


Diskódrottning Íslands, Helga Möller, treður upp ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni á Vagninum, laugardaginn 3. júní næstkomandi.

Helga Möller, ein ástsælasta söngkona landsins, mætir í fyrsta skipti á Vagninn um sjómannadagshelgina. Þeir eru ótal smellirnir sem Helga hefur átt í gegnum tíðina og mega gestir Vagnsins eiga von á stórskemmtilegu kvöldi með frábærum slögurum.

Tónleikarnir hefjast kl. 22 og miðasala er á tix.is.

Viðburður á Facebook

Er hægt að bæta efnið á síðunni?