Dagur Norðurlanda – Samverustund á Dokkunni

Skrá nýjan viðburð


Samverustund á léttum nótum í veitingahúsinu Dokkunni, Sindragötu 14, Ísafirði, á degi Norðurlanda, fimmtudaginn 23. mars, milli kl. 17:30 og 18:30 eða þar um bil.

Allir eru velkomnir Norðurlandabúar sem aðrir.

Dagskrá er í mótun en gera má ráð fyrir einhverjum ræðuhöldum um fjarfund frá samkomu í Norræna húsinu í Reykjavík, leikin verður tónlist eftir norræna höfunda með textum sem verða eingöngu á málum Norðurlandaþjóðanna og málin rædd.

Jónas B. Guðmundsson,
formaður félagsdeildar Norræna félagins á Ísafirði

Er hægt að bæta efnið á síðunni?