70's og 80's rokkveisla á Ísafirði

Skrá nýjan viðburð


Við keyrum upp stuðið fyrir páskana á Ísafirði með 70's og 80's rokkveislu á skírdag 6. apríl í Edinborgarhúsinu. Við ráðumst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, því flutt verða lög eftir Deep Purple, Whitesnake, Boston, Eagles, Toto, Kansas og Rainbow ásamt fleirum. Rokkveislan er tileinkuð minningu Magnúsar Hávarðarsonar, gítarleikara frá Bolungarvík.
Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Miðaverð er 4.500 kr.
Við lofum brjáluðu stuði á Páskafirði!
Fram koma:
Simbi Hjálmarsson, söngur
Hjördís Þráinsdóttir, söngur
Ylfa Mist, söngur
Stefán Baldursson, gítar
Alfreð Erlingsson, hljómborð
Jón H Engilbertsson, gítar
Þorsteinn Bragason, bassi
Haraldur Ringsted, trommur
Miðasala á tix.is!
Er hægt að bæta efnið á síðunni?