Stjórnkerfi
Stjórnkerfi Ísafjarðarbæjar er skipað kjörnum fulltrúum annars vegar og embættismönnum hins vegar. Æðsta yfirvald bæjarins er bæjarstjórn sem kosið er til á fjögurra ára fresti. Æðsti yfirmaður embættismanna er bæjarstjóri sem ráðinn er af bæjarstjórn.
Um stjórnsýslu Ísafjarðarbæjar gilda sveitarstjórnarlög nr. 138/2011.
Erindi til Ísafjarðarbæjar eru ýmist send til embættismanna til fullnaðarafgreiðslu eða þau lögð fyrir nefnd og ráð sem leggja til ákveðna afgreiðslu við bæjarstjórn.
Erindi sem send eru til bæjarins eru móttekin af skjalastjóra eða upplýsingafulltrúa sem koma þeim áleiðis til afgreiðslu viðeigandi starfsmanna eða nefnda.