Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
1367. fundur 16. apríl 2026 kl. 08:10 - 09:10 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson formaður
  • Elísabet Samúelsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Kristján Þór Kristjánsson
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Jóhann Birkir Helgason
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Fiskeldissjóður - umsóknir 2026 - 2026020020

Lagt er fram minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs, dags. 7. apríl 2026, ásamt bréfi frá Fiskeldissjóði þar sem tilkynnt er um samþykkt styrktarumsóknar Ísafjarðarbæjar vegna uppbyggingar slökkvistöðvar. Jafnframt er lagt til að bæjarstjóra verði veitt heimild til að undirrita styrktarsamninginn.
Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til að undirrita styrktarsamninginn.

2.Farþegagjöld og lögmæti gjaldheimtu þeirra - 2026030260

Mál sett á dagskrá að beiðni formanns bæjarráðs, en málið var tekið fyrir að 269. fundi hafnarstjórnar, haldinn 9. apríl 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að stofna vinnuhóp til að greina tekjur og kostnað hafna Ísafjarðarbæjar í ljósi nýlegrar dómaframkvæmdar.

3.Móttökuáætlun fyrir íbúa af erlendum uppruna á Vestfjörðum - 2025120113

Á 496. fundi velferðarnefndar þann 16. desember 2025, mætti Halla Signý Kristjánsdóttur, verkefnastjóri hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á fund velferðarnefndar og kynnti drög um samræmda móttöku og inngildingu íbúa af erlendum uppruna hjá sveitarfélögum á Vestfjörðum. Bæjarstjóri, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, óskaði eftir umsögn velferðarnefndar um drögin.
Í bókun velferðarnefndar lýsti velferðarnefnd yfir ánægju með stefnuna sem felur í sér aukið samstarf sveitarfélaga á Vestfjörðum á nýjum vettvangi. Nefndin leggur áherslu á að betur verði reifuð sjálfsábyrgð hvers einstaklings á lífi sínu, að áætlaður stuðningur og inngilding sé valdeflandi og að Vinnumálastofnun sé lykilaðili í málaflokknum. Jafnframt óskar nefndin eftir að móttökuáætlunin verði kostnaðarmetin af höfundi hennar þar sem ýmis ákvæði í aðgerðaáætlun munu óhjákvæmilega leiða til kostnaðar fyrir aðildarsveitarfélögin. Þá er nauðsynlegt að skoða með hvaða hætti sveitarfélögin styðji við framhald vinnunnar þegar ráðningartímabili verkefnastjóra lýkur, í maí 2026, og hvaða kostnaður felist í því.

Var málið lagt fyrir á nýjan leik á 1364. fundi bæjarráðs, þann 19. mars 2026, ásamt kostnaðarmati unnið af Höllu Signý Kristjánsdóttir, verkefnastjóra Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, móttekið 13. mars 2026. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins og fól bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Er málið nú lagt fram að nýju.
Bæjarráð leggur til að málið verði tekið til umræðu og afgreiðslu á næsta Fjórðungsþingi að hausti, og felur bæjarstjóra að koma því í farveg.

4.Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2027 - 2026030243

Lagt fram til samþykktar ferli fjárhagsáætlunar Ísafjarðarbæjar 2027.
Bæjarráð samþykkir ferli fjárhagsáætlunar Ísafjarðarbæjar 2027.

5.Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna - 2026040102

Lagt fram til kynningar erindi Umboðsmanns barna, dags. 13. apríl 2026, varðandi sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að upplýsa skólastjóra um efni bréfins og vísar erindinu til kynningar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.

6.Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði - fundargerðir stjórnar 2026 - 2026020075

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 2. og 3. fundar stjórnar Stjórnsýsluhússins á Ísafirði, en fundir voru haldnir 5. mars og 9. apríl.
Lagt fram til kynningar.

7.Hafnarstjórn - 269 - 2603019F

Lögð fram til kynningar fundargerð 269. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 9. apríl 2026.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Hafnarstjórn - 269 Hafnarstjórn fagnar því að fyrirhugaðar úrbætur verði gerðar með hliðsjón af umferðaröryggi óvarinna umferð sem nýtur útsýnis meðfram Pollgötu, einnig leggur hafnarstjórn til að gerð verði frumkostnaðaráætlun við Edinborgar- og Bæjarbryggju. Einnig er lagt til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir framkvæmdum í 5 ára fjárfestingaráætlun.
  • Hafnarstjórn - 269 Hafnarstjórn leggur til við bæjarstjórn að heimila breytingu deiliskipulags við harðviðarbryggju, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustuaðila m.t.t. húsnæði og aðstöðu.

    Hafnarstjóra er falið að boða til fundar með hagsmunaaðilum.

8.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 5 - 2603015F

Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.

Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
  • Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 5 Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði leggur fram lokaskýrslu nefndarinnar. Hún telur að skýrslan sýni þá raunhæfu kosti sem eru til staðar til að stækka bæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði. Nefndin áréttar sérstaklega að brýnt sé að hefja undirbúning að stækkun Grunnskólans á Ísafirði án tafar þar sem skólinn er kominn yfir þolmörk í stærð og rými og þjónustan er lögbundin samkvæmt grunnskólalögum.

    Nefndin minnir jafnframt á að þó ráðist hafi verið í kaup á færanlegum leikskólaeiningum fyrir Sólborg og Eyrarskjól til að mæta bráðum húsnæðisvanda á leikskólastigi þá sé það aðeins tímabundinn lausn.

    Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að hefja viðræður við Oddfellow um kaup á húsnæði þeirra við Aðalstræti á Ísafirði og hafin verði undirbúningur á kaupum og endurbótum húsnæðisins sem gert verði ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2027.

9.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 669 - 2603020F

Lögð fram til kynningar fundargerð 669. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 31. mars 2026.

Fundargerðin er í 20 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 669 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila kynningu á vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 á Hvítasandi, Önundarfirði í landi Þórustaða undir nýtt verslunar- og þjónustusvæði fyrir sjóböð, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin er unnin skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

    Áður en tillaga að breytingum á aðalskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 669 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila kynningu vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi sjóbaða við Hvítasand, í landi Þórustaða í Önundarfirði, sbr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010. Deiliskipulagið fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

    Við kynningu á vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi Hvítasands í landi Þórustaða gerðu nefndarmenn athugasemd við niðurstöðu áhrifa framkvæmdanna á samfélag. Skipulagsráðgjafi Eflu uppfærir greinargerð deiliskipulags.

    Áður en tillaga að deiliskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.

10.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 40 - 2603025F

Lögð fram til kynningar fundargerð 40. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 1. apríl 2026.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 40 Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vísar gjaldskrám skóla- og tómstundasviðs fyrir skólaárið 2026-2027 til bæjarstjórnar til samþykktar. Nefndin leggur til að eftirfarandi gjaldskrár haldist óbreyttar milli ára sem framlag Ísafjarðarbæjar til að mæta áhrifum verðbólgu á fjölskyldur:

    -Leikskólar og dagforeldrar
    -Skíðasvæði og leiga á skíðabúnaði
    -Sundlaugar, líkamsrækt og íþróttahús
    -Grunnskólar, leigu- og þjónustugjöld
    -Dægradvöl
    -Íþróttaskóli

    Nefndin leggur jafnframt til að gjaldskrá skólaskrifstofu hækki um 4%.

11.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 41 - 2604005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 41. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.

Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.

12.Velferðarnefnd - 501 - 2604001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 501. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 8. apríl 2026.

Fundargerðin er í 2 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:10.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?