Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
669. fundur 31. mars 2026 kl. 13:30 - 16:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Finney Rakel Árnadóttir varamaður
    Aðalmaður: Guðmundur Ólafsson
  • Anton Helgi Guðjónsson aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
  • Jóhann Bæring Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Hafnarstræti 21, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings - 2024090039

Óðinn Árnason framkvæmdastjóri Yrkis ehf. og Jón Viðar Árnason frá N1 ehf. mæta til fundar um fjarfundarbúnað til að ræða um framtíð N1 á Ísafirði.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulags- og umhverfisfulltrúa að halda áfram viðræðum við Yrki ehf. og N1 ehf. um framtíðaruppbyggingu og aukna þjónustu á Ísafirði.
Óðinn og Jón Viðar yfirgáfu fjarfund kl. 13:51.
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir mætir til fundar kl. 14:00.

2.Hvítisandur, Önundarfirði. Nýtt deiliskipulag í landi Þórustaða - 2026030226

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, skipulagsráðgjafi Hvítasands ehf. hjá EFLU, mætir til fundar um fjarfundarbúnað til að ræða verkefni baðstaðar Hvítasands í Önundarfirði.
Kynnt.
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir yfirgaf fjarfund kl. 14:36.

3.Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Hvítisandur, Önundarfirði. - 2026030225

Lögð fram vinnslutillaga að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 við Hvítasand, Önundarfirði í landi Þórustaða, undir nýtt verslunar og þjónustusvæði fyrir sjóböð, greinargerð með uppdrætti, unnin af ráðgjöfum EFLU, dags. 26. febrúar 2026, skv. 36. gr. skipulagslaga 123/2010.

Skipulagslýsing fyrir verkefnið var auglýst í skipulagsgátt frá 20. október til 17. nóvember 2023, 751. mál.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila kynningu á vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 á Hvítasandi, Önundarfirði í landi Þórustaða undir nýtt verslunar- og þjónustusvæði fyrir sjóböð, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin er unnin skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Áður en tillaga að breytingum á aðalskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.

4.Hvítisandur, Önundarfirði. Nýtt deiliskipulag í landi Þórustaða - 2026030226

Lögð fram vinnslutillaga á nýju deiliskipulagi sjóbaða við Hvítasand, í landi Þórustaða í Önundarfirði, unnin af ráðgjöfum EFLU fyrir Hvítasand ehf., dags. 26. febrúar 2026, uppdráttur og greinargerð, unnið skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Jafnframt er lögð fram viljayfirlýsing Þjóðkirkjunnar dags. 26. júní 2024.

Jafnframt er lagt fram minnisblað rannsókna Náttúrustofu Vestfjarða dags. 16. október 2025 um áhrif framkvæmda á fuglalíf innan Þórustaða, ásamt ásamt samantekt Náttúrustofu Vestfjarða á áhrif baðstaðar á gróður og vistgerðir, dags. 31. mars 2025.

Skipulagslýsing fyrir verkefnið var auglýst í skipulagsgátt frá 20. október til 17. nóvember 2023, 751. mál.
Nú er lagt fram samantekt af athugasemdum og viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila kynningu vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi sjóbaða við Hvítasand, í landi Þórustaða í Önundarfirði, sbr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010. Deiliskipulagið fellur einnig undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Við kynningu á vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi Hvítasands í landi Þórustaða gerðu nefndarmenn athugasemd við niðurstöðu áhrifa framkvæmdanna á samfélag. Skipulagsráðgjafi Eflu uppfærir greinargerð deiliskipulags.

Áður en tillaga að deiliskipulagi er tekin formlega til afgreiðslu í bæjarstjórn, skal tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, þegar við á, kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.

5.Ályktun um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands - 2026030224

Lagður fram til kynningar, tölvupóstur dags. 25. febrúar 2026, frá Úlfari H. Hróbjartssyni hjá Siglingasambandi Íslands, þar sem skorað er á sveitarfélög að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar. 53. Siglingaþing SÍL var haldið 21. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Hraðhleðslustöðvar - 2025090050

Á 658. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þann 11. september 2025 var Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, falið að finna hugsanlegar staðsetningar fyrir hraðhleðslustöðvar á bæjarlandi í samvinnu við hönnuði miðbæjarskipulags Ísafjarðarbæjar og vinna málið áfram.

Á 665. fundi nefndarinnar var lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa, dags. 6. janúar 2026 um staðsetningar fyrir hraðhleðslustöðvar í miðbæ Ísafjarðar er samræmist deiliskipulagi sem er í vinnslu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkti tillögur skipulagsfulltrúa um staðsetningar fyrir hraðhleðslustöðvar á Ísafirði og fól skipulagsfulltrúa að útfæra staðsetningar nánar innan skilgreindra svæða og auglýsa.

24. febrúar 2026 voru staðsetningarnar auglýstar og óskað eftir umsóknum til 10. mars 2026.
Nú eru lagðar fram umsóknir um lóðirnar ásamt minnisblaði Erlu Margrétar Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, dags. 30. mars 2026.
Fimm umsóknir bárust um hverja lóð og útdráttur fór fram af handahófi á nefndarfundinum.
Dregið var um hverja lóð fyrir sig og dregið í fimm sæti.
N1 ehf. hlýtur lóð nr. 1,
Orkusalan ehf. hlýtur lóð nr. 2,
N1 ehf. hlýtur lóð nr. 3.

Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa er falið að hafa samband við umsækjendur og vinna málin áfram.
Falli umsækjandi frá lóðarumsókn þá mun næsti á lista verða gefinn kostur á að fá lóðina.

7.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080

Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni úr Skipulagsgátt dags. 16. febrúar 2026 þar sem Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða kynnir tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050, ásamt umhverfisskýrslu og fylgiriti. Aðildarsveitarfélögin eru öll sveitarfélögin á Vestfjörðum; Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur. Tillaga að Svæðisskipulagi Vestfjarða ásamt forsendum og umhverfismati hennar, er kynnt í Skipulagsgáttinni. Kynningartíminn stendur yfir frá 16. febrúar 2026 til 7. apríl 2026. Óskað er eftir því að athugasemdum verði komið á framfæri á Skipulagsgáttinni fyrir lok dags 7. apríl 2026. Um er að ræða fyrsta svæðisskipulagið sem tekur til Vestfjarða í heild og markar sameiginlega stefnu sveitarfélaga til ársins 2050. Í svæðisskipulagstillögunni eru sett fram leiðarljós og markmið undir fimm málefnasviðum; náttúru og auðlindir, grunnkerfi, samfélagsauð, atvinnu og nýsköpun og menningarauð. Hver málaflokkur hefur sín markmið og aðgerðir ásamt skýringum við stefnuna. Auglýsing tillögunnar og umhverfismatsskýrslu er á grundvelli 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Skipulags- og mannvirkjanefnd fagnar því að Svæðisskipulag Vestfjarða sé að líta dagsins ljós. Vinna við skipulagið hefur staðið yfir allt þetta kjörtímabil í miklu og góðu samstarfi kjörinna fulltrúa í öllum sveitarfélögum Vestfjarða.

Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar gerir ekki athugasemdir við tillöguna en bendir á að athugasemdafrestur er til og með 6. apríl 2026.

8.Malbikun 2026 - Ísafjarðarbær - 2026030111

Á 1363. fundi bæjarráðs, þann 12. mars 2026, var lögð fram til kynningar yfirlitsmynd frá Verkís hf. vegna malbikunaráforma sumarið 2026. Yfirlitsmynd var lögð fram til kynningar.

Bæjarráð fól bæjarstjóra að koma með hugmyndir að vægum úrræðum til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi, s.s. með yfirborðsmerkingum og hraðalækkandi aðgerðum, og leggja fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd.

Er málið nú lagt fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd, ásamt minnisblaði sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 10. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Strenglagning - Sauðanes - 2026030056

Á 1363. fundi bæjarráðs, þann 12. mars 2026, var lagt fram erindi frá Birni Davíðssyni, f.h. Snerpu ehf., vegna fyrirhugaðar strenglagningar frá Staðardal í Súgandafirði, fyrir Sauðanes, yfir Klofningsheiði og niður Klofningsdal að Flateyri.

Bæjarráð tók jákvætt í erindið en beinir því til málsaðila að senda inn fyrirspurn um matsskyldu til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

Auk þess vísaði bæjarráð málinu til afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd.

Varðandi beiðni málsaðila um styrk að fjárhæð kr. 2.400.000 vegna framkvæmdarinnar, tekur bæjarráð jákvætt í beiðnina, en mun taka afstöðu til hennar eftir afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar og HMS, og þegar frekari tímalína liggur fyrir um verkefnið. Verður erindið tekið aftur fyrir síðar á fundi bæjarráðs.
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur framkvæmdina mikilvæga út frá öryggissjónarmiðum bæði hvað varðar fjarskiptaöryggi í víðum skilningi og einnig raforkuöryggi og styður einnig við markmið aðalskipulagsins.

Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að samkvæmt 7. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi er meginreglan sú að framkvæmdaleyfi skuli byggja á deiliskipulagi. Heimilt er þó að veita framkvæmdaleyfi á grundvelli aðalskipulags ef þar er gerð sérstök og ítarleg grein fyrir framkvæmdinni, þ.m.t. um legu, umfang, frágang og áhrif á umhverfið.

Þar sem fyrirhuguð framkvæmd liggur um hverfisverndarsvæði (H3) og vatnsverndarsvæði er sérstaklega mikilvægt að leyfisgrundvöllur sé skýr og útfærður.

Jafnframt er áréttað að framkvæmdin fellur undir tilkynningarskyldar framkvæmdir (B-flokk) samkvæmt lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana og reglugerð nr. 1381/2021, og að því leiðir að leita skal niðurstöðu Skipulagsstofnunar um matsskyldu áður en sveitarfélagið tekur endanlega afstöðu til útgáfu leyfa, sbr. framangreinda reglugerð um framkvæmdaleyfi.

10.Botnsvirkjun í Dýrafirði, 257. mál. Kynning matsáætlunar - 2026030267

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Skipulagsstofnun, dags. 5. mars 2026 vegna áforma Botnsorku ehf, félag í eigu landeiganda jarðanna Botns og Dranga í Dýrafirði, um að reisa Botnsvirkjun í Dýrafjarðarbotni, Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu), mál nr. 0257/2026 í skipulagsgátt.

Áætlað er að uppsett afl Botnsvirkjunar verði allt að 3 MW. Virkjunin verður rennslisvirkjun án miðlunarlóna og nýtir hluta vatns Botnsár og Drangaár til raforkuframleiðslu. Inntaksmannvirki verður staðsett í Botnsá í um 370 m hæð y.s. Þaðan liggur niðurgrafin þrýstipípa að stöðvarhúsi sem staðsett verður í sunnanverðum Botnsdal við skógræktarreit sem er í dalbotninum. Framleidd orka verður flutt um jarðstreng að Dýrafjarðargöngum og tengist þar dreifikerfi raforku.

Umsagnafrestur er til og með 2. apríl 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs að skila inn umsögn.

11.Hafnarlóð á Þingeyri. Umsókn um skipulagsbreytingar - 2025090034

Á 662. fundi Skipulags- og mannvirkjanefndar þann 12. nóvember 2026, tók nefndin vel í erindi dags. 30. ágúst 2025 frá Pavel Ermolinskij um svæði aftan við Hafnarstræti 6 á Þingeyri, undir baðstofu, potta, gufur og til slökunar og telur að það geti aukið gæði svæðisins, en bendir á að lóðin hafi áður hýst olíutanka og því gæti verið mengun í jarðvegi sem þarf að kanna. Nefndin óskar jafnframt eftir umsögn hverfaráðs Dýrafjarðar áður en málið verður unnið áfram.

Nú er lögð fram umsögn hverfaráðs Dýrafjarðar dags. 29. janúar 2026 og mengunarmælingar unnið af EFLU fyrir Ísafjarðarbæ í febrúar 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að ræða við umsækjanda vegna niðurstöðu mengunarmælinga í skýrslu EFLU, síðan í febrúar 2026.

12.Umsókn um lóð á Suðurtanga, við Æðartanga 6, Ísafirði - 2026030265

Lögð fram umsókn um afnot af lóðarskika, frá Vali Richter f.h. húsfélagsins við Æðartanga 6 á Ísafirði, dags. 13. febrúar 2026 ásamt afstöðumynd með afmörkun lóðarskikans.
Tilgangur umsóknarinnar er að setja upp snyrtilega girðingu og nýta svæðið til geymslu á búnaði og efni sem ekki er hægt að geyma innandyra. Nauðsynlegt er fyrir fyrirtækin að hafa slíka aðstöðu utanhúss til að halda rekstri skipulögðum og snyrtilegum.
Skipulags- og mannvirkjanefnd hafnar erindinu þar sem umrædd lóð er á deiliskipulagi sem byggingarlóð.

13.Rekstarleyfi Arnarlax ehf. í Arnarfirði. Auglýsing á endurnýjun - 2026030263

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Matvælastofnun þar sem stofnunin kynnir endurnýjun á rekstrarleyfi Arnarlax ehf. í Arnarfirði.

Rekstraraðili hefur verið með leyfi til fiskeldis með allt að 10.000 tonna lífmassa í Arnarfirði (FE-1105) sem var gefið út 6. maí 2016. Leyfinu var breytt með auglýsingum og útgáfum í maí 2022 og aftur í september sama ár. Núverandi leyfi rennur út þann 6. maí 2026.

Frestur til athugasemda vegna endurnýjunarinnar er til og með 16. apríl 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi Arnarlax ehf. í Arnarfirði.

14.Sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi - Háafell, 166. mál - 2024020088

Lagt fram til kynningar, álit HMS (Skipulagsstofnunar) dags. 12. mars 2026 um umhverfismatsskýrslu Háafells vegna 4.500 tonna aukningu á hámarkslífmassa og breytingar á eldissvæðum fyrirtækisins í Ísafjarðardjúpi, 166. mál 2024 í skipulagsgátt.

Í umhverfismatsskýrslu Háafells ehf. eru kynnt áform um frekari uppbyggingu sjókvíaeldis á laxi og regnbogasilungi í Ísafjarðardjúpi með því að auka hámarkslífmassa um 4.500 tonn frá því sem nú er heimilt, í 11.300 tonn, fækka eldissvæðum og stækka og breyta eldissvæðunum á Ytra-Kofradýpi og við Bæjahlíð.

Í samræmi við 16. gr. reglugerðar nr. 1381/2021 hefur HMS farið yfir umhverfismatsskýrslu Háafells ehf. sem lögð var fram samkvæmt 23. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. HMS telur að umhverfismatsskýrslan uppfylli skilyrði laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Lagt fram til kynningar.

15.Lagning strengja milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar, umsagnarbeiðni - 2026020058

Lögð fram ákvörðun Skipulagsstofnunar vegna tilkynningar til ákvörðunar um matsskyldu, vegna áforma Orkubús Vestfjarða ohf. um lagningu 33 kV og 11 kV jarðstrengja milli Skutulsfjarðar og Súðavíkur í Álftafirði.

Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það niðurstaða Skipulagsstofnunar að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Samkvæmt 30. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana má kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Kærufrestur er til 4. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Fjarðarstræti 11 - Umfangsflokkur 1 - 2026030221

Lögð er fram fyrirspurn Jóhans Birkis Helgasonar vegna fyrirhugaðra framkvæmda á húsinu en óskað er eftir því að fá að hækka húsið um eina hæð.
Jafnframt eru lögð fram drög að aðaluppdrætti sem fullkláraður verður ef vel verður tekið í málið.
Óskað er eftir afstöðu skipulags- og mannvirkjanefndar vegna málsins.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir umsækjanda á að óska eftir því að grenndarkynna áformin, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

17.Hafnarstræti 5 - Fyrirspurn til byggingarfulltrúa - 2026030219

Lögð er fram fyrirspurn frá Fjólubláu húfunni ehf. vegna mögulegrar breytingar á efri hæð Hafnarstrætis 5. Húsið er skráð sem skrifstofa en óskað er eftir því að breyta efri hæð hússins í íbúð til skammtímaleigu og myndi þá falla í notkunarflokk 4.
"Mannvirki eða rými þar sem gert er ráð fyrir að fólk gisti. Fólk sem er í mannvirkinu er ekki allt nægjanlega kunnugt umhverfinu til að þekkja flóttaleiðir en er almennt fært um að bjarga sér sjálft út úr mannvirkinu eða á öruggt svæði við eldsvoða"
Jafnframt er lögð fram teikning frá kaa arkitektum en um er að ræða hönnunargögn þess tíma er stóð til að hækka þak hússins. ( um er að ræða grunnmynd 2. hæðar )
Óskað er afstöðu nefndarinnar vegna málsins.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir umsækjanda á að með umsókn um rekstrarleyfi þarf m.a. að skila inn:
Nákvæmri teikning af húsnæði. Ef um blandaða notkun húsnæðis er að ræða skal fylgja staðfest afrit af aðaluppdrætti þess þar sem fram kemur afmörkun þess rýmis sem ætlað er fyrir reksturinn og skal tilgreina stærð þess í fermetrum. Einnig skal fylgja með umsókn upplýsingar um aðgengi að almennum bílastæðum eða bílastæðum sem fylgja gististað samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.

Nefndin felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.

18.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Aðalgata 21 - Flokkur 2, - 2023050088

Lögð er fram tillaga frá Hugrúnu Þorsteinsdóttur um breytingu á áður samþykktu byggingarleyfi f.h. Prentmiðlun ehf.
Jafnframt eru lagðir fram aðaluppdrættir frá M11 arkitektum.
Sökum nálægðar við lóðarmörk er óskað álits nefndarinnar er kemur að grenndarkynningu til aðliggjandi lóðarhafa.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að skv. gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð um smáhýsi:

Smáhýsi sem er að hámarki 15 m² og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs. Sé smáhýsið minna en 3,0 m frá aðliggjandi lóð þarf samþykki eigenda aðliggjandi lóðar. Slík smáhýsi eru ekki ætluð til gistingar eða búsetu.
Nefndin óskar eftir samþykki aðliggjandi lóðarhafa við Aðalgötu 19 á Suðureyri.
Jóhann Bæring Gunnarsson yfirgaf fund kl. 16:21.

19.Sindragata 5-7 Fyrirspurn til byggingarfulltrúa - 2026030220

Lögð er fram fyrirspurn frá Pétri Bjarnasyni f.h. Ingólfs Árnasonar. Fyrirspurnin snýr að því að kanna möguleikann á því vera með almennar íbúðir á efri hæðum Sindragötu 5 og 7. Umsækjandi hefur kynnt sér aðalskipulag svæðisins og þá staðreynd að nú er ekki gert ráð fyrir íbúðum á þessu svæði nema í undantekningartilvikum. Því vill umsækjandi kanna hvort þessu gæti verið breytt. Erindi vísað til skipulags- og mannvirkjanefndar til umfjöllunar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd getur ekki fallist á íbúðir á hafnarsvæði, með vísan til landnýtingar og skipulagsreglugerðar 90/2013.

20.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 91 - 2603017F

Lögð fram til kynningar, 91. fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa en fundur var haldinn 26. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?