Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Gjaldskrár skólaárið 2026-2027 - 2026030290
Gjaldskrár skóla- og tómstundasviðs lagðar fram til umræðu.
Jóna Dagbjört, Jóna Kristín og Þóranna yfirgáfu fundinn kl.09:00.
Gestir
- Þóranna Þórarinsdóttir - mæting: 08:15
- Jóna Kristín Kristinsdóttir - mæting: 08:15
- Jóna Dagbjört Pétursdóttir - mæting: 08:15
2.Endurskoðun verkefnasamninga 2025 - 2025040086
Lagt fram minnisblaði Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, og Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 16. mars 2026 varðandi endurskoðun á verkefnasamningum.
Nefndin felur starfsmönnum að vinna drög að uppfærðum verkefnasamningum og leggja fyrir næsta fund.
Edda María yfirgaf fundinn kl.09:20
Gestir
- Edda María Hagalín - mæting: 09:02
3.Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum 2026-2027 - 2026030291
Lagðar fram úthlutunarreglur um styrkveitingu og úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum og íþróttasvæðum til íþróttafélaga og almennings.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að kalla eftir óskum íþróttafélaga um tíma í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar fyrir sumarið 2026 og veturinn 2026-2027. Starfsmönnum einnig falið að gera breytingar á reglum í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund.
4.Frístundastyrkir - 2024110087
Lagðar fram beiðnir frá þremur félögum sem óska eftir því að heimilt verði að nýta frístundastyrk Ísafjarðarbæjar hjá þeim. Félögin leggja áherslu á að starfsemi þeirra falli vel að markmiðum frístundastyrksins og telja að þátttaka barna og ungmenna í þeirra starfi geti styrkt fjölbreytt frístundastarf í sveitarfélaginu.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að heimilt verði að nýta frístundastyrk Ísafjarðarbæjar hjá Reykjadal og sunddeild UMFB. Nefndin felur starfsmönnum að kalla eftir frekari upplýsingum frá forsvarsmanni Leik og sprell varðandi fyrirhugað námskeið á Ísafirði.
Fundi slitið - kl. 09:45.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
-Leikskólar og dagforeldrar
-Skíðasvæði og leiga á skíðabúnaði
-Sundlaugar, líkamsrækt og íþróttahús
-Grunnskólar, leigu- og þjónustugjöld
-Dægradvöl
-Íþróttaskóli
Nefndin leggur jafnframt til að gjaldskrá skólaskrifstofu hækki um 4%.