Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
5. fundur 08. apríl 2026 kl. 14:00 - 14:45 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
  • Guðbjörg Halla Magnadóttir
  • Þröstur Jóhannesson
  • Axel Rodriguez Överby
Starfsmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá

1.Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði - 2025120103

Lögð fram til kynningar lokaskýrsla nefndar um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla dags. 7. apríl 2026.
Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði leggur fram lokaskýrslu nefndarinnar. Hún telur að skýrslan sýni þá raunhæfu kosti sem eru til staðar til að stækka bæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði. Nefndin áréttar sérstaklega að brýnt sé að hefja undirbúning að stækkun Grunnskólans á Ísafirði án tafar þar sem skólinn er kominn yfir þolmörk í stærð og rými og þjónustan er lögbundin samkvæmt grunnskólalögum.

Nefndin minnir jafnframt á að þó ráðist hafi verið í kaup á færanlegum leikskólaeiningum fyrir Sólborg og Eyrarskjól til að mæta bráðum húsnæðisvanda á leikskólastigi þá sé það aðeins tímabundinn lausn.

Nefnd um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla í Skutulsfirði leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að hefja viðræður við Oddfellow um kaup á húsnæði þeirra við Aðalstræti á Ísafirði og hafin verði undirbúningur á kaupum og endurbótum húsnæðisins sem gert verði ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2027.

Fundi slitið - kl. 14:45.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?