Hafnarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
269. fundur 09. apríl 2026 kl. 12:00 - 13:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Magnús Einar Magnússon formaður
  • Catherine Patricia Chambers varaformaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Jóhann Bæring Gunnarsson varamaður
    Aðalmaður: Sædís Ólöf Þórsdóttir
  • Ólafur Baldursson aðalmaður
Starfsmenn
  • Hilmar Kristjánsson Lyngmo hafnarstjóri
  • Axel Rodriguez Överby
Fundargerð ritaði: Axel R. Överby Sviðstjóri umhverfis- og eignarsviðs
Dagskrá

1.Pollgata - Göngustígur, lagnir og færsla sjóvarna - 2026030069

Á 1363. fundi bæjarráðs, þann 12. mars 2026, var lagt fram minnisblað Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, 5. mars 2026, vegna Pollgötu, göngustíga, lagna og færslu sjóvarna. Bæjarráð samþykkti að undirbúningi verði haldið áfram í samræmi við minnisblað sviðsstjóra, dags. 5. mars 2026.

Málinu var jafnframt vísað til fundar hafnarstjórnar til kynningar, og óskar eftir að Axel Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs, verði boðaður til fundarins.
Hafnarstjórn fagnar því að fyrirhugaðar úrbætur verði gerðar með hliðsjón af umferðaröryggi óvarinna umferð sem nýtur útsýnis meðfram Pollgötu, einnig leggur hafnarstjórn til að gerð verði frumkostnaðaráætlun við Edinborgar- og Bæjarbryggju. Einnig er lagt til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir framkvæmdum í 5 ára fjárfestingaráætlun.

2.Skipulag á hafnarsvæðum vegna móttöku skemmtiferðaskipa - Sundahöfn - 2024100012

Lagt fram minnisblað hafnarstjóra um skipulag í Sundahöfn ásamt tillögu að skipulagi við Harðviðarbryggju. Einnig umsagnir frá Sjóferðum dags. 7. janúar 2026, Hauki Vagnssyni dags. 7. janúar 2026, Skútusiglingum ehf. dags. 28. janúar 2026 og Auði K ferðaþjónustu dags. 4. mars 2026
Hafnarstjórn leggur til við bæjarstjórn að heimila breytingu deiliskipulags við harðviðarbryggju, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustuaðila m.t.t. húsnæði og aðstöðu.

Hafnarstjóra er falið að boða til fundar með hagsmunaaðilum.

3.Sumarviðburðasjóður - 2024020083

Lagður fram samningur dags. 1. apríl 2026, milli Hafna Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðastofu um umsjón með styrktarsjóði Ísafjarðarhafna.
Hafnarstjórn samþykkir samning við Vestfjarðarstofu og felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.

4.Sundabakki, Suðurtanga. Tímabundin afnot svæðis vegna samsetningu eldiskvía - 2024060071

Hafnarstjóri hefur rætt við Hampiðjuna um aðgengi að svæði sem KJ Hydrolik hafa falast eftir á Suðurtanga.

Hafnarstjóri óskar eftir umboði til að semja við KJ Hydrolik um tímabundin afnot af svæðinu.
Hafnarstjórn samþykkir tímabundin afnot til 1. september 2026.

5.Farþegagjöld og lögmæti gjaldheimtu þeirra - 2026030260

Lagt er fram erindi frá Rúnari Karlssyni dagsett 19. mars 2026 fyrir hönd Skútusiglinga ehf. um lögmæti innheimtu farþegagjalda.
Einnig póstur frá Gunnari Vali Sveinssyni f.h. Samtaka ferðaþjónustunnar dags. 25. mars 2026.
Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram.

6.Göngustígur meðfram Sundahöfn - 2026040026

Lagt fram minnisblað hafnarstjóra dagsett 19. mars 2026, ásamt uppdráttum frá Eflu, þar sem óskað er eftir heimild hafnarstjórnar, til að sækja um framkvæmdaleyfi vegna göngustígs meðfram Sundahöfn, að útboði loknu.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að sækja um framkvæmdaleyfi og bjóða verkið út.

7.Landtenging fyrir skemmtiferðaskip - 2026030044

Lögð fram tillaga að samstarfssamningi milli Hafna Ísafjarðarbæjar og Plug um rannsóknarvinnu vegna landtengingar fyrir skemmtiferðaskip.
Hafnarstjóri óskar eftir heimild til að halda áfram með verkið.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.

8.Cruise Iceland - ýmis erindi 2026-2027 - 2026030045

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Cruise Iceland en aðalfundur var haldinn þann 12. mars, stjórnarfundur var haldinn þann 7. apríl 2026.
Einnig lagður fram undirritaður ársreikningur og umhverfi skattlagningar á skemmtiferðaskip við Ísland 2026.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?