Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Lýsing Torfnes - útboð - 2026020049
Lagt fram til samþykktar minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 4. maí 2026, varðandi yfirferð tilboða í útboðinu "Knattspyrnuvöllur á Torfnesi vallarlýsing" og tillaga um samningsgerð.
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja að bæjarstjóra verði falið að ganga til samninga við Metatron / Iðnafl á grundvelli hagstæðasta tilboðsins.
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja að bæjarstjóra verði falið að ganga til samninga við Metatron / Iðnafl á grundvelli hagstæðasta tilboðsins.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóra verði falið að ganga til samninga við Metatron / Iðnafl á grundvelli hagstæðasta tilboðsins.
Eyþór yfirgaf fund kl. 8:20.
Gestir
- Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri - mæting: 08:10
2.Bygging þjónustukjarna í samvinnu við Þroskahjálp - 2026040277
Lagt fram minnisblað Margrétar Geirsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 29. apríl 2026, varðandi umsókn til Þorskahjálpar um byggingu fjölbýlishúss með þjónustukjarna.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að halda áfram viðræðum við Þroskahjálp um byggingu fjölbýlishúss með þjónustukjarna.
Margrét yfirgaf fund kl. 8:33.
Gestir
- Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:20
3.Flateyrarhöfn 6, Flateyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025070005
Mál sett á dagskrá að beiðni formanns bæjarráðs, en málið var tekið fyrir 270. fundi hafnarstjórnar, þann 30. apríl 2026, þar sem lagt var fram minnisblað frá Hilmari K. Lyngmo, hafnarstjóra dagsett 29. apríl 2026, vegna lóðarinnar Flateyrarhöfn 6.
Hafnarstjóri fer yfir málið með bæjarráði.
Gestir
- Hilmar Lyngmo, hafnarstjóri - mæting: 08:33
4.Göngustígur frá móttökuhúsi Sundabakka - 2026040264
Mál sett á dagskrá að beiðni formanns bæjarráðs, en málið var tekið fyrir 270. fundi hafnarstjórnar, þann 30. apríl 2026, en við opnun tilboða í yfirborðsefni barst einungis eitt tilboð, frá Græjað og gert ehf., í verkið ,,Göngustígur yfirborðsefni", að fjárhæð kr. 40.471.500, eða 86% af kostnaðaráætlun, sem var kr. 47.200.000.
Hafnarstjóri fer yfir málið með bæjarráði, ásamt stöðu mála um uppbyggingu móttökuhúss og bókanir skemmtiferðaskipa næstu ára.
Hafnarstjóri yfirgaf fund kl. 8.46.
5.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar - breyting 2026 - 2026050011
Lagt fram minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 4. maí 2026, varðandi breytingar sem nauðsynlegt er að gera á 48. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, en lagt er til bæjarráð að vísa breytingum til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, í samræmi við minnisblað.
6.Ný bæjarstjórn - fyrstu verkefni - 2026050027
Lagt fram til kynningar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 4. maí 2026, varðandi fyrstu verkefni nýrrar bæjarstjórnar eftir sveitarstjórnarkosningar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda minnisblaðið til allra oddvita framboða í Ísafjarðarbæ.
7.Vátryggingaútboð 2026-2030 - 2026040284
Lagt fram minnisblað Guðmundar M. Ásgrímssonar, f.h. Concello, tryggingaráðgjafa Ísafjarðarbæjar, vegna opnunar útboðs á vátryggingum Ísafjarðarbæjar og tengdra aðila, en opnun tilboða fór fram 30. apríl 2026.
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að tilboð lægstbjóðanda, VÍS, að fjárhæð kr. 32.291.495, vegna áranna 2027-2029.
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að tilboð lægstbjóðanda, VÍS, að fjárhæð kr. 32.291.495, vegna áranna 2027-2029.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð lægstbjóðanda, VÍS, að fjárhæð kr. 32.291.495, vegna áranna 2027-2029.
8.Náttúrustofur - úttekt á starfsemi og tillögur að framtíðarfyrirkomulagi - 2024110126
Lagt fram til kynningar erindi Steinars Kaldal, f.h. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, dags. 5. maí 2026, varðandi skipan starfshóps sem á að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins, markvissari ráðstöfun fjármuna, aukinn skýrleika um verkefni sem ríkið fjármagnar, bætann fyrirsjáanleika í rekstri náttúrustofa og trygga varðveislu og aðgengi að gögnum.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.
9.Aðalfundur fulltrúaráðs Háskólaseturs Vestfjarða 2026 - 2026050028
Lagt fram erindi Catherine Chambers, f.h. Háskólaseturs Vestfjarða, dagsett 1. maí 2026, þar sem boðað er til aðalfundar fulltrúaráðs, en fundurinn verður haldinn 22. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
10.Fundargerðir Byggðasafns Vestfjarða 2022-2026 - 2026040202
Lagðar fram til kynningar fundargerðir Byggðasafns Vestfjarða árið 2025 og 2026, auk fylgigagna með fundargerðum, en um er að ræða fundargerð aðalfundar 22. september 2025, fundargerð 130. stjórnarfundar haldinn 25. nóvember 2025 og 131. stjórnarfundar haldinn 25. mars 2026.
Auk þess er lögð fram ársskýrsla 2025, grisjunarstefna 2026-2028 og safnastefna 2023-2028.
Auk þess er lögð fram ársskýrsla 2025, grisjunarstefna 2026-2028 og safnastefna 2023-2028.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í menningarmálanefnd.
11.Hafnarstjórn - 270 - 2604025F
Lögð fram til kynningar fundargerð 270. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 30. apríl 2026.
Fundargerðin er í 6 liðum.
Fundargerðin er í 6 liðum.
Lagt fram til kynningar.
12.Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps - 44 - 2604015F
Lögð fram til kynningar fundargerð 44. fundar sameinaðrar almannavarnanefndar Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps, en fundur var haldinn 5. maí 2026.
Fundargerðin er í 3 liðum.
Fundargerðin er í 3 liðum.
Lagt fram til kynningar.
13.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 671 - 2604023F
Lögð fram til kynningar fundargerð 671. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 30. apríl 2026.
Fundargerðin er í 11 liðum.
Fundargerðin er í 11 liðum.
Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 671 Skipulags og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu á tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, vegna Eyrarkláfs, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 42 - 2604019F
Lögð fram til kynningar 42. fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 29. apríl 2026.
Fundargerðin er í 9 liðum.
Fundargerðin er í 9 liðum.
Lagt fram til kynningar.
-
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 42 Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vísar reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum til samþykktar í bæjarstjórn þar sem skýrara er tekið fram að börn í 1.-4 bekk æfa ekki á Torfnesi eftir kl. 16:00 á daginn þar sem mikil aðsókn er í þá tíma hjá eldri flokkum.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vill taka fram að úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum í Ísafjarðarbæ er ekki pólitísk ákvörðun heldur fylgir reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum
Nefndin ber fullt traust til starfsmanna skóla og tómstundasviðs og kallar eftir drögum að tímaúthlutun fyrir næsta fund.
15.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 168 - 2604020F
Lögð fram til kynningar fundargerð 168. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 29. apríl 2026.
Fundargerðin er í 7 liðum.
Fundargerðin er í 7 liðum.
Lagt fram til kynningar.
-
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 168 Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að samið verði við lægstbjóðanda á grundvelli niðurstöðu örútboðsins og vísar málinu áfram til bæjarráðs til afgreiðslu hjá bæjarstjórn.
Fundi slitið - kl. 09:12.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?