Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Life - Icewater 2025-2030 - 2025020024
Lagðar eru fram niðurstöður örútboðs í ráðgjafaþjónustu fyrir LIFE ICEWATER-verkefnið. Lagt er fram til samþykktar að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, og að málinu verði vísað til bæjarráðs til umfjöllunar og jafnframt til bæjarstjórnar til samþykktar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að samið verði við lægstbjóðanda á grundvelli niðurstöðu örútboðsins og vísar málinu áfram til bæjarráðs til afgreiðslu hjá bæjarstjórn.
2.Minningarreitur v Urðarveg, áður Seljalandsvegur 64a - 2026030298
Lögð fram fyrirspurn dags. 5. mars 2026 frá Önnu Karen Kristjánsdóttur ásamt tölvupósti dags. 7. apríl 2026, þar sem óskað er eftir leyfi til að setja niður minningarbekk núna í vor og minningarplatta í haust við Urðarveg, áður Seljalandsveg 64a.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd fagnar erindinu og samþykkir beiðni um minningarbekk og platta við Urðarveg.
3.Vatnaskil í þjóðlendumálum - 2026040145
Lagður fram tölvupóstur til kynningar, frá Forsætisráðuneytinu, dags. 16. mars 2026 vegna vatnaskila í þjóðlendumálum óbyggðanefndar.
Þau tímamót urðu í desember 2025 að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin lauk þar með verkefni sínu, sem hófst 1998, að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu.
Þau tímamót urðu í desember 2025 að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin lauk þar með verkefni sínu, sem hófst 1998, að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu.
Lagt fram til kynningar.
4.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar umsagnabeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dags. 24. apríl 2026, þar sem
umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 595. mál - Loftslagslög. Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí 2026.
umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 595. mál - Loftslagslög. Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
5.Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélag Íslands 2026 - 2026040244
Lögð fram til kynningar, ályktun frá fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands, sem haldinn var 28. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.
6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar umsagnabeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dags. 26. mars 2026, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 565.mál - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur). Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis. Frestur til að senda inn umsögn var til og með 14. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.
7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar umsagnabeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dags. 30. mars 2026, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits). Frestur til að senda inn umsögn var til og með 16. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd bókaði á 165. fundi nefndarinnar sem haldinn var 11. febrúar 2026, á fyrri stigum málsins að nefndin teldi ljóst að breytingarnar munu hafa áhrif á landsbyggðina og fól skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda inn umsögn. Umsögn skipulags- og umhverfisfulltrúa var send inn 17. febrúar 2026.

Fundi slitið - kl. 09:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?