Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Þórir Guðmundsson aðalmaður boðaði forföll, enginn varamaður sat fundinn í hans stað.
1.Ákall um aðgerðir og áætlanir vegna hættu á kynferðisofbeldi í leikskólum - 2026040065
Lagt fram erindi Ingibjargar Einarsdóttur, leikskólastýru á Eyrarskjóli, varðandi ákall um aðgerðir og áætlanir vegna hugsanlegrar hættu á kynferðisofbeldi gegn börnum í leikskólum í Ísafjarðarbæ dags. 7. apríl 2026.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd þakkar skólastjóra fyrir samantektina og að vekja athygli á þessu máli. Best væri ef leikskólastjórar færu í úttekt á sínum leikskólum og skiluðu inn aðgerðaráætlun til Sviðstjóra skóla og tómstundasviðs. Skóla og tómstundasvið mun svo leggja aðgerðaráætlanir fyrir nefndina.
2.Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna - 2026040102
Á 1367. fundi bæjarráðs, þann 16. apríl 2026, var lagt fram til kynningar erindi Umboðsmanns barna, dags. 13. apríl 2026, varðandi sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að upplýsa skólastjóra um efni bréfsins og vísaði erindinu til kynningar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
Er málið nú lagt fram til kynningar.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að upplýsa skólastjóra um efni bréfsins og vísaði erindinu til kynningar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
Er málið nú lagt fram til kynningar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hvetur börn og ungmenni til að kynna sér framboð til kosninga í sínu sveitarfélagi og mæta á pallborðsumræður ungmennaráðs Vestfjarða með frambjóðendum.
3.Íslensku menntaverðlaunin - 2026040140
Lagður fram tölvupóstur frá Önnu Ingadóttur, sérfræðingi í skólamálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 17. apríl 2026 varðandi tilnefningar til íslensku menntaverðlaunanna.
Lagt fram til kynningar
4.Ungmennaráð sveitarfélaga - 2025100070
Lagt fram minnisblað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dags. 22 apríl 2026 varðandi stofnun ungmennaráðs Ísafjarðarbæjar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir framlagða nálgun um skipun ungmennaráðs Ísafjarðarbæjar. Nefndin felur starfsmanni að vinna drög að reglum og verklagi fyrir ungmennaráð og leggja fyrir nefndina á næsta fundi.
5.Úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum 2026-2027 - 2026030291
Lagðar fram óskir aðildarfélaga HSV um úthlutun tíma í íþróttahúsum Ísafjarðarbæjar fyrir sumarið 2026 og veturinn 2026?2027. Einnig eru lögð fram drög að endurskoðuðum úthlutunarreglum, með breytingum í samræmi við tillögur nefndarinnar, til umræðu og afgreiðslu.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vísar reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum til samþykktar í bæjarstjórn þar sem skýrara er tekið fram að börn í 1.-4 bekk æfa ekki á Torfnesi eftir kl. 16:00 á daginn þar sem mikil aðsókn er í þá tíma hjá eldri flokkum.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vill taka fram að úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum í Ísafjarðarbæ er ekki pólitísk ákvörðun heldur fylgir reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum
Nefndin ber fullt traust til starfsmanna skóla og tómstundasviðs og kallar eftir drögum að tímaúthlutun fyrir næsta fund.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd vill taka fram að úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum í Ísafjarðarbæ er ekki pólitísk ákvörðun heldur fylgir reglum um úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum
Nefndin ber fullt traust til starfsmanna skóla og tómstundasviðs og kallar eftir drögum að tímaúthlutun fyrir næsta fund.
6.Frístundastyrkir - 2024110087
Á 40. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var þann 1. apríl 2026 var starfsmanni falið að kalla eftir frekari upplýsingum frá forsvarsmanni Leik og sprell varðandi fyrirhugað námskeið á Ísafirði.
Nefndin samþykkir að foreldrar geti nýtt frístundastyrk ef þeirra börn sækja námskeið hjá Leikir og sprell.
7.HSB og HSV - Stefnumótun íþróttahéraða á Vestfjörðum - 2026040227
Lagður fram tölvupóstur frá Birnu Hannesdóttur, svæðisfulltrúa íþróttahéraða á Vestfjörðum dags. 20. apríl 2026 ásamt skýrslu sem unnin var í kjölfar stefnumótunarfundar aðildarfélaga Héraðssambands Bolungarvíkur (HSB) og Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) sem haldinn var 24. mars síðastliðinn. Á fundinum komu saman fulltrúar sem sinna daglegu íþróttastarfi á norðanverðum Vestfjörðum.
Skýrsla lögð fram til kynningar. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að skýrsluhöfundar kynni niðurstöður hennar fyrir nýrri nefnd eftir kosningar svo að aðgerðaráætlun skili sér inn í stefnumótun sveitarfélagsins.
8.Skóladagatal grunnskóla Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026040074
Lögð fram skóladagatöl Grunnskólans á Ísafirði, Grunnskólans á Suðureyri, Grunnskóla Önundarfjarðar og Grunnskólann á Þingeyri fyrir skólaárið 2026-2027.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir skóladagatöl grunnskóla Ísafjarðarbæjar fyrir skólaárið 2026-2027.
9.Skóladagatal leikskóla Ísafjarðarbæjar skólaárið 2026-2027 - 2026040073
Lögð fram skóladagatöl fyrir leikskólana Eyrarskjól á Ísafirði, Sólborg á Ísafirði, Tjarnarbæ á Suðureyri, Laufás Þingeyri og Grænagarð Flateyri fyrir skólaárið 2026-2027.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd kallar eftir nýjum skóladagatölum frá leikskólastjórum sem eru í samræmi í skráningardaga og lokunardaga. Nefndin getur ekki samþykkt að allir lokunardagar raðist í kringum jól og páska.
Fundi slitið - kl. 10:10.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?