Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Tunguskeið, Skutulsfirði. Nýtt deiliskipulag á svæði í2 - 2024090115
Lögð fram vinnslutillaga á nýju deiliskipulagi á svæði í2 á Tunguskeiði á Ísafirði, uppdráttur og greinargerð unnin af ráðgjöfum Verkís ehf. dags. 27. apríl 2026.
2.Deiliskipulag á Torfnesi - menntastofnanir og dæluhús - 2025030193
Lagðar fram til kynningar, athugasemdir og umsagnir við vinnslutillögu breytinga á deiliskipulagi Torfness, vegna menntastofnana og dæluhúss. Kynningarferli stóð frá 24. febrúar 2026, til og með 17. mars 2026. Tíu umsagnir bárust á kynningartímanum.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur mikilvægt að deiliskipulagsvinna fari fram samhliða hönnun mannvirkja og byggingarreitir ákvarðist á fyrirhuguðum framkvæmdum.
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur mikilvægt að deiliskipulagsvinna fari fram samhliða hönnun mannvirkja og byggingarreitir ákvarðist á fyrirhuguðum framkvæmdum.
3.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting - Eyrarkláfur - 2025100173
Lögð fram tillaga að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna Eyrarkláfs, unnin af EFLU dags. 19. mars 2026, uppdráttur dags. 4. júní 2025, og greinargerð dags. 19. mars 2026, skv. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gert verður ráð fyrir nýjum landnotkunarreit undir afþreyingar og ferðamannasvæði (AF1), þannig að stefna aðalskipulagsins samræmist uppbyggingaráformum Eyrarkláfs ehf. um kláf á Eyrarfjall. Óbyggt svæði og opin svæði til sérstakra nota minnkar sem því nemur. Landnotkunarreitur i37 fyrir aðveitustöð fellur úr gildi.

Skipulags og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila auglýsingu á tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, vegna Eyrarkláfs, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4.Deiliskipulag Eyrarkláfur nýtt - 2025100175
Lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi Eyrarkláfs, í greinargerð, dags. 19. mars 2026, og á uppdrætti, dags. 19. mars 2026, unnin af ráðgjöfum EFLU fyrir Eyrarkláf ehf.
Skipulagssvæðið er staðsett í Eyrarfjalli í Skutulsfirði, sem er 700 metra hátt beint fyrir ofan Ísafjarðarbæ. Það afmarkast af byrjunarstöð kláfsins við hlíðarfót Eyrarfjalls, upp að Gleiðarhjalla þar sem reistur verður millistaur fyrir kláfinn og svo áfram á topp Eyrarfjalls þar sem endastöð kláfsins er staðsett.

Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að ekki sé tekið nógu mikið tillit til athugasemda sem bárust vegna umferðarálags og umferðaröryggis.
Starfsmanni nefndar er falið að vera í sambandi við ráðgjafa.
Starfsmanni nefndar er falið að vera í sambandi við ráðgjafa.
5.Deiliskipulag Gleiðarhjalli - breyting - Eyrarkláfur - 2025100174
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Gleiðarhjalla, í greinargerð dags. 19. mars 2026, og á uppdrætti dags. 19. mars 2026, unnin af ráðgjöfum EFLU fyrir Eyrarkláf ehf.
Skipulagssvæðið er staðsett í Eyrarfjalli í Skutulsfirði, sem er 700 metra hátt beint fyrir ofan Ísafjarðarbæ. Það afmarkast af byrjunarstöð kláfsins við hlíðarfót Eyrarfjalls, upp að Gleiðarhjalla þar sem reistur verður millistaur fyrir kláfinn og svo áfram á topp Eyrarfjalls þar sem endastöð kláfsins er staðsett.
Skipulagssvæðið er staðsett í Eyrarfjalli í Skutulsfirði, sem er 700 metra hátt beint fyrir ofan Ísafjarðarbæ. Það afmarkast af byrjunarstöð kláfsins við hlíðarfót Eyrarfjalls, upp að Gleiðarhjalla þar sem reistur verður millistaur fyrir kláfinn og svo áfram á topp Eyrarfjalls þar sem endastöð kláfsins er staðsett.
Nýtt deiliskipulag Eyrarkláfs og breytingar á deiliskipulagi Gleiðarhjalla verða afgreidd samhliða.
6.Mjólkárlína 2 í Arnarfirði. Breyting á deiliskipulagi Mjólkárvirkjunar - 2026040275
Lagt fram erindi frá Landsneti, dags. 29. apríl 2026, þar sem óskað er að gera breytingu á deiliskipulagi Mjólkárvirkjunar í Arnarfirði vegna Mjólkárlínu 2.
Skipulags og mannvirkjanefnd heimilar deiliskipulagsbreytingu Mjólkárvirkjunar í Arnarfirði vegna Mjólkárlínu 2, skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.Ósk um lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð - 2026020083
Lagður fram tölvupóstur frá Sigríði Magnúsdóttur f.h. Atlantsolíu, kt.590602-3610, dags. 24. apríl 2026, þar sem fyrirtækið sækir um lóð á Stekkjarnesi 940 til 1.470 m2 að stærð.
Jafnframt er lagt fram minnisblað Atlantsolíu út frá staðarvalskostum. Niðurstaðan að Stekkjarnes væri áhugaverðasti kosturinn og kom helst til greina fyrir starfsemi sjálfsafgreiðslustöðvarinnar þrátt fyrir mögulega áhættu vegna snjóflóða.

Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir umsögn Veðurstofu Íslands og Vegagerðarinnar.
8.Seljalandsvegur 79, Ísafirði. Lóðarleigusamningur 2025, bílskúrar - 2025090129
Lagt fram uppfært mæliblað tæknideildar, dags. 24. apríl 2026, vegna lóðarmarkabreytinga og gerð á nýjum lóðarleigusamningi vegna bílskúra við Seljalandsveg 79 á Ísafirði, Miðtúnsmegin.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi í samræmi við mæliblað dags. 24. apríl 2026.
9.Eyrargata 2 og 4, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun lóðarleigusamninga - 2024060069
Skipulags- og mannvirkjanefnd fól starfsmönnum tæknideildar að útbúa nýtt lóðarblað á grundvelli eldri samnings á 634. fundi nefndar þann 11. júlí 2024. Nú er lagt fram uppfært mæliblað tæknideildar, dags. 24. apríl 2026 vegna lóðar við Eyrargötu 2 og 4, Ísafirði ásamt lóðar spennistöðvar Orkubús Vestfjarða við Fjarðarstræti.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfsmanni nefndar að ganga frá lóðarleigusamningi við Eyrargötu 2 og 4 á Ísafirði, í samræmi við mæliblað dags. 24. apríl 2026.
10.Vatnaskil í þjóðlendumálum - 2026040145
Lagður fram tölvupóstur til kynningar, frá Forsætisráðuneytinu, dags. 16. mars 2026, vegna vatnaskila í þjóðlendumálum óbyggðanefndar.
Þau tímamót urðu í desember 2025 að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin lauk þar með verkefni sínu, sem hófst 1998, að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu.
Þau tímamót urðu í desember 2025 að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin lauk þar með verkefni sínu, sem hófst 1998, að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu.
Lagt fram til kynningar.
11.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 92 - 2604014F
Lögð fram til kynningar, fundargerð 92. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa en fundur var haldinn 22. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að gott væri að útvíkka deiliskipulag á svæði Í2 þannig að skáli/samkomustaður, sem áætlaður var í hluta II, verði hluti af áfanga I.