Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Trúnaðarmál - 2026010261
Trúnaðarmál lagt fyrir bæjarráð.
Trúnaðarmál kynnt í bæjarráði.
2.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - hlutafjáraukning Hvetjandi - 2025120020
Lagður fram til samþykktar viðauki 7 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026, vegna hlutafjáraukningar í Hvetjanda.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000,-

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauki 7 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026, vegna hlutafjáraukningar í Hvetjanda.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000,-
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000,-
3.Ný slökkvistöð - Hönnun og útboð - 2024120087
Á 12. fundi nefndar um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði, sem haldinn var 27. febrúar 2026, voru lögð fram drög að útboðsgögnum vegna útboðs á fyrsta áfanga framkvæmda við nýja slökkvistöð á Suðurtanga, sem tekur til burðarvirkis mannvirkisins. Jafnframt fylgdu málinu útboðslýsing, verklýsing og uppdrættir auk kostnaðaráætlunar frá Glóru ehf. dagsett 20. apríl 2026.
Lagt var til að nefndin vísi málinu til bæjarráðs til samþykktar, með það að markmiði að fá heimild til að fara í útboð og hefja innkaupaferli verksins á grundvelli fyrirliggjandi útboðsgagna. Nefnd um byggingu slökkvistöðvar lagði til við bæjarráð að heimila sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs að hefja útboðsfasa með tilliti til fyrirliggjandi gagna.
Er málið nú lagt fyrir bæjarráð til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir að hefja útboðsfasta og innkaup verksins á grundvelli fyrirliggjandi útboðsgagna, og felur bæjarstjóra framkvæmd málsins.
Gestir
- Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:25
4.Kaup á krókheysisbíl (tankbíl) fyrir slökkvilið - 2026020066
Lagt er fram minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 27. apríl 2026, vegna niðurstöðu útboðs nr. 20266 um kaup á krókhreysisbíl fyrir slökkvilið Ísafjarðarbæjar. Lagt er til að sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs verði falið að ganga frá samningsgerð við Klett sölu og þjónustu ehf.
Bæjarráð samþykkir niðurstöðu samkvæmt minnisblaði og felur bæjarstjóra að ganga frá samningsgerð við Klett sölu og þjónustu ehf., á grundvelli tilboðsins að fjárhæð kr. 43.206.000.
5.Ásgeirsgata 2 - samkomulag um úthlutun lóðar - 2025010224
Lagt fram til samþykktar viljayfirlýsing um lóðaúthlutun vegna hafnsækinnar starfsemi milli Ísafjarðarbæjar og Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. um að úthlutað verði til uppbyggingar allt að 20.115 m2 lóðar fyrir hafnsækna starfsemi sem snýr að vinnslu bolfisk og- laxfisk, ásamt þjónustu við skip og báta. Samkomulag þetta nær yfir svæði á Suðurtanga, Ásgeirsgötu 2, sem nú er skilgreint í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar sem reitur I40, á þéttbýlisuppdrætti, sjá viðauka III, en, uppskipting lóðar verður nánar útfærð með deiliskipulagsbreytingu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viljayfirlýsingu við Hraðfrystihúsið Gunnvöru hf. um lóðaúthlutun að Ásgeirsgötu 2 á Ísafirði, til hafnsækinnar starfsemi.
6.Fundarboð aðalfundur Fastís 2026 - 2026040260
Lagt fram fundarboð aðalfundar Fasteigna Ísafjarðarbæjar, en fundur er haldinn 7. maí 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mæta til fundarins fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.
Axel yfirgaf fund kl. 9:00.
Gylfi Ólafsson vék af fundi við afgreiðslu málsins, kl. 9.00.
7.Samningur um rekstrarstyrk til Edinborgarhússins ehf. 2025-2026 - 2024110134
Á 1304. fundi bæjarráðs, þann 25. nóvember 2024, var lagt fram erindi Inga Björns Guðnasonar, f.h. stjórnar Edinborgarhússins, dags. 14. nóvember 2024, um samning Edinborgarhússins við menningarmálaráðuneytið um rekstrarframlag til tveggja ára, en löngum hefur verið horft til þríhliða samnings þessara aðila og Ísafjarðarbæjar, m.a. í ljósi liðar 2.2. í Menningarstefnu Ísafjarðarbæjar 2022-2032. Er óskað frekari aðkomu Ísafjarðarbæjar að málinu í því ljósi. Jafnframt lagður fram til kynningar samningur menningar- og viðskiptaráðuneytisins við Edinborgarhúsið ehf. um rekstrarstyrk til Edinborgarhússins ehf. 2025-2026. Bæjarráð tók jákvætt í áframhaldandi samstarf við Edinborgarhúsið og fól bæjarstjóra að ræða við stjórn hússins.
Á 1314. fundi bæjarráð, þann 17. febrúar 2025, var lagt fram erindi stjórnar Edinborgarhússins, dags. 5. febrúar 2025, þar sem óskað er eftir að framlag Ísafjarðarbæjar verði jafnað við framlag menningarmálaráðuneytisins, að teknu tilliti til núgildandi samning um styrk vegna fasteignagjalda. Bæjarráð tók jákvætt í erindið og fól bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Stjórn Edinborgarhússins kom til fundar með bæjarstjórn og menningarmálanefnd þann 5. mars 2026 og fór yfir nýja stefnu Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar. Er nú lagt fram minnisblað Sigríðar Júlíu Brynleifsdóttur, bæjarstjóra, dags. 29. apríl 2026, vegna málsins.

Bæjarráð samþykkir greiðslu styrks til Menningarmiðstöðvar Edinborgarhússins að fjárhæð kr. 5.400.000 fyrir árið 2026, og felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2026 vegna málsins fyrir bæjarstjórn 7. maí 2026.
Þá samþykkir bæjarráð að bæjarstjóra verði falið að ganga til þríhliða samningsviðræðna við Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsið og menningarmálaráðuneytið, þar sem forsendur um viðburðahald eru settar fram gagnvart sveitarfélaginu.

Gylfi kom aftur til fundarins kl. 9.05.
8.Reglur Ísafjarðarbæjar um launalaust leyfi starfsmanna - 2026040201
Lagðar fram til samþykktar reglur Ísafjarðarbæjar um launalaust leyfi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglur Ísafjarðarbæjar um launalaus leyfi starfsmanna.
9.Áfangastaðaáætlun Vestfjarða - 2025020175
Lögð fram til samþykktar endurskoðuð Áfangastaðaáætlun Vestfjarða 2026, unnin af Markaðsstofu Vestfjarða/Vestfjarðastofu ses.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja Áfangastaðaáætlun Vestfjarða 2026.
10.Stuðningur við heimildamyndina Nóttin - um snjóflóðið á Flateyri 1995 - 2026040243
Lagt fram erindi Búa Baldvinssonar, f.h. Hero Productions, dags. 22. apríl 2026, þar sem óskað er stuðnings Ísafjarðarbæjar við heimildamyndina Nóttina - um snjóflóðið á Flateyri 1995, að fjárhæð kr. 11.000.000.
Nóttin er persónuleg og nærgætin heimildarmynd sem byggir á frásögnum eftirlifenda, aðstandenda þeirra sem fórust, björgunarfólks og annarra sem upplifðu atburðinn.
Markmið myndarinnar er þríþætt:
1. Að heiðra fórnarlömb og eftirlifendur með virðingu sem þau eiga skilið.
2. Að varðveita mikilvæga sögu sem annars gæti glatast.
3. Að styðja við opinbera umræðu um rannsókn á atburðunum.

Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við beiðninni og vísar umsækjanda á menningarmálasjóð Ísafjarðarbæjar og aðra styrktarsjóði á Vestfjörðum.
11.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2025-2026 - 2025120183
Lagðar fram til staðfestingar 2 yfirlýsingar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Bæjarráð staðfestir 2 yfirlýsingar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.
12.Aðalfundur 2026 - Byggðasafn Vestfjarða - 2026040231
Lagt fram erindi Jónu Símoníu Bjarnadóttur, forstöðumanns, dags. 24. apríl 2026 vegna boðs á aðalfund Byggðasafns Vestfjarða sem haldinn verður 11. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
13.Aðalfundur Landskerfis Bókasafna hf. 2026 - 2026040153
Lagt fram til kynningar boð á aðalfund Landskerfis bókasafna hf., sem haldin verður þann 12. maí 2025.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fela forstöðumanni Bókasafnsins Ísafirði að mæta til fundarins f.h. Ísafjarðarbæjar.
14.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009
Lögð fram til kynningar fundargerð 997. fundar stjórnar Sambandsins frá 17. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.
15.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080
Lögð fram til kynningar fundargerð 25. fundar svæðisskipulagsnefndar, en fundur var haldinn 14. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.
16.Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði - 12 - 2602005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 12. fundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði, en fundur var haldinn 24. apríl 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
17.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 670 - 2604009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 670. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 16. apríl 2026.
Fundargerðin er í 5 liðum.
Fundargerðin er í 5 liðum.
Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 670 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Fjallaból ehf. fái úthlutað til uppbyggingar lauga, hótels og heilsuræktarstöðvar, land á Hauganesi í Skutulsfirði, á grundvelli 6. gr. úthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar.
-
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 670 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að fenginn verði ráðgjafi til að meta virði jarðarinnar Reykjanes L141585 í Ísafjarðardjúpi og mögulega framtíðarnýtingu svæðisins.
18.Velferðarnefnd - 502 - 2604008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 502. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 15. apríl 2026.
Fundargerðin er í 3 liðum.
Fundargerðin er í 3 liðum.
Lagt fram til kynningar.
-
Velferðarnefnd - 502 Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á 20.gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði. Það felur í sér að gerðir verði ótímabundnir leigusamningar í stað þess að gera fyrsta leigusamning til eins árs.
19.Velferðarnefnd - 503 - 2604021F
Lögð fram til kynningar fundargerð 503. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 27. apríl 2026.
Fundargerðin er í 1 lið.
Fundargerðin er í 1 lið.
Lagt fram til kynningar.
-
Velferðarnefnd - 503 Velferðarnefnd Ísafjarðarbæjar leggur hér með fram til afgreiðslu í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar forvarnarstefnu með áherslu á forvarnir, lýðheilsu og heilsueflandi samfélag á öllum æviskeiðum.
Við mótun stefnunnar hefur verið byggt á samráði við íbúa og lykilaðila í forvarnarstarfi með áherslu á heildræna, þverfaglega nálgun, skýr markmið og reglubundna eftirfylgni.
Nefndin telur stefnuna marka tímamót í uppbyggingu heildstæðs og samræmds forvarnarstarfs í sveitarfélaginu.
Velferðarnefnd leggur ríka áherslu á að stefnan verði virk í framkvæmd og nýtist sem raunverulegt stjórntæki í daglegu starfi. Í því skyni mun nefndin leiða innleiðingu og eftirfylgni stefnunnar, þar sem árlega verða skilgreind forgangsmarkmið innan hvers aldurshóps og unnið að framgangi þeirra í nánu samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Þannig þróist stefnan í takt við þarfir samfélagsins og byggi á raunverulegum, mælanlegum gögnum og reynslu af framkvæmd.
Nefndin telur stefnuna mikilvægt stefnumótandi skjal sem muni styrkja forvarnarstarf í sveitarfélaginu og stuðla að bættri vellíðan og lífsgæðum íbúa á öllum aldri.
Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja stefnuna.
Fundi slitið - kl. 09:40.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?