Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
670. fundur 16. apríl 2026 kl. 13:30 - 14:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur Ólafsson varaformaður
  • Anton Helgi Guðjónsson aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
  • Gauti Geirsson varamaður
    Aðalmaður: Jóhann Bæring Gunnarsson
Starfsmenn
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Hauganes - Beiðni um lóðaúthlutun - 2026040101

Lagður fram tölvupóstur frá Jóni Grétari Magnússyni hjá M11 Arkitektum, fyrir hönd forsvarsmanna Fjallabóls ehf. dagsettur 13. apríl 2026, þar sem óskað er eftir lóð á Hauganesi á grundvelli 6. gr. úthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar.

Sjá einnig meðfylgjandi gögn: "Beiðni um lóðaúthlutun svæðis til uppbyggingar á grundvelli 6. gr. úthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar" dagsett 13. apríl 2026, "Hauganes Bað og hótel", kynning dagsett 1. apríl 2026, sem kynnt var fyrir bæjarfulltrúum ásamt drögum að samningi um lóðaúthlutun (vinnuskjal).
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Fjallaból ehf. fái úthlutað til uppbyggingar lauga, hótels og heilsuræktarstöðvar, land á Hauganesi í Skutulsfirði, á grundvelli 6. gr. úthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar.

2.Skeið 2, Ísafirði. Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa um uppskipti lóðar - 2026030023

Lögð fram fyrirspurn frá Ómari Helgasyni, f.h. Hnífa ehf. dags. 15. febrúar 2026 um uppskipti lóðarinnar við Skeiði 2, Ísafirði undir snertilausa bílaþvottastöð á um 500-600 fm lóð. Í gildandi deiliskipulagi er stærð lóðarinnar við Skeiði 2, 1.745,0 fm með nýtingarhlutfall 1,0 eða 1.745,0 fm.
Skipulags- og mannvirkjanefnd fellst ekki á uppskipti á lóðunum við Skeiði 2 og 4.

3.Skeið 2, Ísafirði. Umsókn um lóð undir þvottastöð - 2026030016

Lögð fram umsókn um lóð undir bílaþvottastöð við Skeiði 2 á Ísafirði, frá Unnari Hermannssyni f.h. Erasmus eignarhaldsfélags ehf., dags. 27. febrúar 2026.

Á 607. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þann 26. apríl 2026 var lögð fram umsókn frá félaginu um lóðir við Skeiði 2, 4 og 6 á Ísafirði. Nefndin óskaði eftir frekari gögnum sem eru grunnútlitsteikning af fyrirhugaðri byggingu og ítarlegar upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi í byggingunni.

Nú er lögð fram afstöðumynd unnin af Mansard teiknistofu ehf., ódags. ásamt nánari upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi sem er bílaþvottastöð Löðurs.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið en getur ekki úthlutað þremur lóðum á grundvelli einnar umsóknar. Nefndin bendir umsækjanda á að sækja um hverja lóð með viðeigandi gögnum, sbr. grein 1.5 í reglum um úthlutun lóða Ísafjarðarbæjar.

"Þegar sótt er um lóð á skipulögðu svæði fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi þarf að fylgja með lóðarumsókn grunnútlitsteikning af fyrirhugaðri byggingu og ítarlegar upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi í byggingunni".

4.Skeið við Tungubraut, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2026040109

Lögð fram umsókn frá Orku náttúrunnar ohf. skv. tölvupósti dags. 15. apríl 2026, um lóð á Skeiði undir hleðslugarð ON.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindi um hleðslugarð en bendir umsækjanda á að þegar sótt er um lóð á skipulögðu svæði fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi þarf að fylgja með lóðarumsókn grunnútlitsteikning af fyrirhugaðri byggingu og ítarlegar upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi, sbr. grein 1.5 í reglum um úthlutun lóða Ísafjarðarbæjar.

5.Áætlun eignamarka jarða í landeignaskrá - 2025060184

Á 668. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar voru lögð fram gögn um áætlun eignarmarka jarða í eigu Ísafjarðarbæjar í Súðavíkurhreppi.

Gögnin eru lögð fram að nýju til frekari umræðna um framtíðarhorfur sveitarfélagsins er varðar Reykjanesið.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að fenginn verði ráðgjafi til að meta virði jarðarinnar Reykjanes L141585 í Ísafjarðardjúpi og mögulega framtíðarnýtingu svæðisins.

Fundi slitið - kl. 14:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?