Velferðarnefnd
Dagskrá
1.Reglur Ísafjarðarbæjar um félagslegt leiguhúsnæði - 2022120052
Lagt fram minnisblað Hörpu Stefánsdóttur deildarstjóra um breytingu á 20. gr. reglna Ísafjarðarbæjar um félagslegt leiguhúsnæði.
Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á 20.gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði. Það felur í sér að gerðir verði ótímabundnir leigusamningar í stað þess að gera fyrsta leigusamning til eins árs.
2.Sískráning 2026 - 2026030258
Sískráning barnaverndartilkynninga barnaverndarþjónustu Vestfjarða fyrir janúar og febrúar 2026 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.Forvarnarstefna Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025030036
Lögð fram drög að stefnu Ísafjarðarbæjar í forvörnum.
Nefndin fór yfir innkomnar athugasemdir og tillögur. Forvarnarstefnan verður lögð fyrir nefndina fullunnin í síðustu viku aprílmánaðar.
Fundi slitið - kl. 13:30.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?