Velferðarnefnd
Dagskrá
1.Forvarnar- og lýðheilsustefna Ísafjarðarbæjar 2026-2031 - 2025030036
Lokadrög að forvarnar- og lýðheilsustefnu Ísafjarðarbæjar 2026-2031 lögð fram. Unnin lokaútfærsla á stefnunni með upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar.
Velferðarnefnd Ísafjarðarbæjar leggur hér með fram til afgreiðslu í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar forvarnarstefnu með áherslu á forvarnir, lýðheilsu og heilsueflandi samfélag á öllum æviskeiðum.
Við mótun stefnunnar hefur verið byggt á samráði við íbúa og lykilaðila í forvarnarstarfi með áherslu á heildræna, þverfaglega nálgun, skýr markmið og reglubundna eftirfylgni.
Nefndin telur stefnuna marka tímamót í uppbyggingu heildstæðs og samræmds forvarnarstarfs í sveitarfélaginu.
Velferðarnefnd leggur ríka áherslu á að stefnan verði virk í framkvæmd og nýtist sem raunverulegt stjórntæki í daglegu starfi. Í því skyni mun nefndin leiða innleiðingu og eftirfylgni stefnunnar, þar sem árlega verða skilgreind forgangsmarkmið innan hvers aldurshóps og unnið að framgangi þeirra í nánu samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Þannig þróist stefnan í takt við þarfir samfélagsins og byggi á raunverulegum, mælanlegum gögnum og reynslu af framkvæmd.
Nefndin telur stefnuna mikilvægt stefnumótandi skjal sem muni styrkja forvarnarstarf í sveitarfélaginu og stuðla að bættri vellíðan og lífsgæðum íbúa á öllum aldri.
Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja stefnuna.

Fundi slitið - kl. 12:45.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, upplýsingafulltrúi Ísafjarðarbæjar sat fundinn.