Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 54

Í miðbæ Toblach/Dobbiaco. Það er ekki hægt að fanga mikilfengleik fjallanna hér á mynd. Bærinn er í …
Í miðbæ Toblach/Dobbiaco. Það er ekki hægt að fanga mikilfengleik fjallanna hér á mynd. Bærinn er í 1250 metra hæð yfir sjávarmáli og fjöllin auðvitað enn hærri!

Dagbók bæjarstjóra dagan 12.–18.janúar 2026, í 54. viku í starfi.

Ég var mest í því þessa viku að hreinsa upp eins og ég segi, taka til í tölvupóstunum, funda með starfsfólki um ýmis innri mál. Svo átti ég nokkra góða fundi með fólki sem er með ýmsar nýjar hugmyndir og kemur vonandi fram með þær opinberlega í náinni framtíð.

Í vikunni var mánaðarlegur forstöðumannafundur, vikulegur samráðsfundur sviðsstjóra, ég fundaði með formanni svæðisskipulagsnefndar og starfsmönnum til að undirbúa næsta fund svæðisskipulagsnefndar en verið er að hanna útlit og umbrot afurðarinnar.

Bæjarráð fundaði á fimmtudagsmorgni. Þar var til dæmis farið yfir drög að umsögn um lagareldi en það er talsverð vinna að fara yfir það og við ætlum að skila inn ítarlegri umsögn. Þá var samþykkt umsögn um reglugerð um strandveiðar. Við vorum einnig að samþykkja framlengingu á sorphirðusamningi til vors en verið er að undirbúa nýtt útboð.

Síðar sama dag var fundur bæjarstjórnar og var þar stærsta málið að bæjarstjórn samþykkti sérreglur sveitarfélagsins um byggðakvóta. Nú fara þær til ráðuneytisins en fresturinn er til 19.janúar og þá verða þær til kynningar á vef ráðuneytisins í sjö daga áður en þær fara til efnislegrar meðferðar og eftir að það hefur yfirfarið þær og samþykkt getur Fiskistofa auglýst og eftir það auglýsir Fiskistofa byggðakvótann til umsóknar.

Í vikunni var haldið upp á tíu ára afmæli Hjúkrunarheimilisins Eyrar. Heilbrigðisstofnunin bauð því í kaffi á Eyri. Þar var fjölmenni, íbúar, starfsfólk og íbúar Ísafjarðarbæjar. Ég færði Auði Ólafsdóttur deildarstjóra hjúkrunarheimilisins blómvönd til íbúa Eyrar frá Ísafjarðarbæ í tilefni dagsins.


Ég færði Auði deildarstjóra á Eyri blómvönd í tilefni 10 ára afmælis Eyrar.


Afmælisveislan á Eyri.


Ég og tengdamamma mín í afmælisveislunni á Eyri.

Ég er núna komin í tveggja vikna „sumarfrí“. Janúar hentar ágætlega fyrir bæjarstjóra að taka frí, því það fór nefnilega lítið fyrir því á „venjulegum“ sumarfrístíma hjá mér enda í mörg horn að líta og margt að setja sig inní þegar maður hefur nýhafið starf eins og þetta. Ég er núna, þegar þetta er skrifað, stödd í Suður-Týról í ítalska bænum Dobbiaco en á þýsku er hann þekktur undir heitinu Toblach. Hér ætlum við að ganga á skíðum í góðum félagsskap næstu vikuna en færum okkur svo um set seinni vikuna. Segi ykkur frá því eftir viku.


Í flugrútu með góðum vinum okkar, Helgu og Bjössa, á leið í ævintýraferð til Suður-Týról.


Hitti þessar í miðbænum í Toblach/Dobbiaco.


Dúi og Helga frá Hjarðardal ytri. Forfeður hennar áttu Hjarðardal á undan fólkinu hans Dúa. Önfirðingar í Suður-Týról.


Í brautinni í dag.