Vika 2: Dagbók bæjarstjóra

Dagbók 13.–19. júní 2026. Sautjándinn, tiltekt, regnvatnslagnir á Þingeyri, sólmyrkvagleraugu og frumvarp um lagareldi voru meðal viðfangsefna vikunnar.

Síðasta dagbók endaði um hádegisbil á föstudag. Við tökum þá upp þráðinn seinnipartinn þann dag, en þá voru tvær opnanir listasýninga í bænum. Sú fyrri var í Safnahúsinu, Aðlögun, með fallegum gler-, keramik- og sílikonverkum Valgerðar Sigurðardóttur og Ragnhildar Stefánsdóttur.

Sú seinni var í Bryggjusal Edinborgarhússins, Fagurstúfur.

Mánudagur og þriðjudagur einkenndust af ýmsum innri fundum, samtölum vegna lagareldis (sjá neðar) og hefðbundinni glímu við tölvupóst.

Á mánudag komu bankastjóri og ýmsir lykilstarfsmenn Landsbankans í heimsókn til okkar Kristjáns til að kynna sér stöðu mála í vestfirska efnahagskerfinu.

Á þriðjudag kíkti ég upp í þjónustumiðstöðina, sem einu sinni hét áhaldahús, og fræddist um starfsemi miðstöðvarinnar sem Páll Brynjar Pálsson stýrir og garðyrkjudeildarinnar sem Sighvatur Jón Þórarinsson stýrir.

Hjá bænum er fjölmennt starfslið sem sinnir bæjarlandinu og er þar af ýmsu að taka. Blómabeð og illgresi, grassláttur og ruslatunnutæmingar, viðhald ýmisskonar og viðgerðir eru fljót að fylla dagana. Til dæmis er bærinn kominn með þrjá götusópa; einn stóran og tvo minni. Þó er ljóst að bærinn kemst ekki yfir allt og þurfa bæði íbúar og fyrirtæki að taka höndum saman. Íbúar og fyrirtæki geta til dæmis séð um illgresi sem vex undir húsvegg og á gangstéttum í námunda við hús sín og mannvirki. Bærinn hefur gefið salt til að strá ofan í illgresissár, og var í vikunni fyllt á saltið meðal annars við grenndargáma í öllum kjörnum og þjónustumiðstöðina.

Víða í bæjarlandinu og inni á lóðum eru ónýtir bílar, tæki og kerrur sem eiga sér ekkert framhaldslíf og ættu að fara á haugana strax. Auk þess eru skýrar reglur um að íbúar klippi trjágróður sem fer út fyrir lóðamörk og passi að illgresi nái sér ekki á strik innan lóðamarka, einkum kerfill. Margar hendur vinna létt verk.

Þá er gott að minna á ábendingakerfi Ísafjarðarbæjar, þar sem hægt er að senda ábendingar og starfsfólk sér til þess að koma þeim á réttan stað.

Hæ hó

Hátíðahöld 17. júní fóru vel fram þrátt yfir talsverðan kalsa. Ég var plataður til að vera kynnir á sjúkrahússtúninu, en söng einnig þrjú ættjarðarlög með hátíðarkórnum.

Að hátíðahöldunum loknum sótti ég Sigurð Boga Sævarsson blaðamann Morgunblaðsins og tók hann á rúntinn um bæinn. Leiðir okkar skildu svo við Blómagarðinn þar sem haldnir voru garðtónleikar í tengslum við tónlistarhátíðina Við Djúpið.

Það sést skýrt í fundargerðum bæjarins að 18. júní var mikill fundadagur en þann dag voru í fundasal bæjarstjórnar haldnir heilir sex fundir; bæjarráð, umhverfis- og framkvæmdanefnd, velferðarnefnd, skipulags- og mannvirkjanefnd og að síðustu bæjarstjórn.

Í bæjarstjórn var samþykktur viðauki við fjárhagsáætlun þar sem breytingar voru gerðar á framkvæmdaáætlun til að koma til móts við verðhækkanir á malbiki.

Einnig var sett inn tímabær framkvæmd á Þingeyri sem kallað hefur verið eftir.

Regnvatnslagnir á Þingeyri fullfjármagnaðar

Forsagan er þessi. Fráveitukerfið á Þingeyri var orðið úrelt og var fyrir nokkrum árum ákveðið að sameina útrásir og setja upp hreinsistöð fyrir skólp. Þær framkvæmdir hafa gengið sinn gang en er ekki lokið. Hluti af verkefninu var að aðskilja ofanvatn frá skólpi. Það er nefnilega óþarfi að setja regnvatn í gegnum hreinsistöð á leið þess til sjávar.

Eins og Þingeyringar vita nú flestir, voru því við þessar aðgerðir sett grennri skólprör niður Hafnarstrætið. Seinni hluti verkefnisins—að leiða regnvatnið til sjávar—hafði ekki komist inn á framkvæmdaáætlun. Vonir stóðu til þess að hægt væri að fresta því eitthvað. Svo reyndist ekki vera, og fljótt fór að flæða upp úr lögnum, Þingeyringum til skiljanlegrar armæðu.

Með viðaukanum sem samþykktur var í bæjarstjórn er því búið að samþykkja fjárveitingu í verkefnið og hefur verðkönnun þegar verið framkvæmd.

Lagareldið dagar uppi

Á föstudag lauk Alþingi án þess að frumvarp um lagareldi næði í gegn. Það var verulega sorglegt af ýmsum ástæðum. Málið hafði verið slegið út af borðinu við gerð þinglokasamninga, en reynt var fram á síðustu stundu að koma því aftur inn á borðið með málamiðlunum. Það var allt saman mjög flókið enda flókið frumvarp undir.

Hanna Katrín Friðriksson ráðherra málaflokksins á heiður skilinn fyrir að drífa málið áfram og reyna af megni að feta þröngt einstigi ólíkra hagsmuna og sjónarmiða. Ekki var nægilega mikil samstaða innan þingsins og geirans til að klára málið. Ekki bætir úr skák alvarleg rekstrarstaða fyrirtækjanna, einkum Kaldvíkur fyrir austan. Þrátt fyrir að laxeldi sé ein af burðargreinum nýrrar atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar, virðast Vestfirðingar ekki hafa rödd sem hlustað er á.

Okkar afstaða í heimapólitíkinni hefur verið að hlusta á varnaðarorð fyrirtækjanna um ýmis atriði í frumvarpinu—svo sem skattlagningu—en styðja það í heild vegna þeirra tímabæru og nauðsynlegu umbóta sem það boðaði til að styðja umhverfisvænan vöxt greinarinnar í sátt við nærsamfélagið.

Margir sem ég hef talað við síðustu daga eru vígamóðir og treysta sér ekki í aðra lotu. Vonandi verður gerð önnur atlaga að málinu strax í haust. Þetta er sennilega eitt allra stærsta hagsmunamál okkar Vestfirðinga. Miðað við gildandi regluverk er skattlagningin fullkomlega ósjálfbær og alveg óboðlegt að regluverkið velkist í pólitísku millibilsástandi lengur.

Sólmyrkvagleraugu fyrir alla íbúa

Við birtum myndband á föstudaginn til að kynna sólmykrvagleraugun sem íbúar sveitarfélagsins geta fengið, en 12. ágúst nálgast óðfluga

Seinnipartinn á föstudag var ég leynigestur á fræðslu- og skemmtifundi Skólastjórafélags Vestfjarða, og kippti harmonikkunni með mér. Þaðan hljóp ég með nikkuna upp á skrifstofu til að spjalla við Guðmund Fertram Sigurjónsson. Hann fékk að munda nikkuna fyrst, en svo ræddum við ýmislegt, meðal annars bjarta framtíð Kerecis, vaxtartækifæri á svæðinu og málstofu sem við erum að undirbúa á Hringborði norðurslóða í haust um varnarinnviði.

 Fertram á margt ólært í harmonikuleik.

Ég læt hér staðar numið. Næsta vinnuvika verður stutt hjá mér því á miðvikudagsmorgun mun ég fara með strákahóp á fótboltamót og þaðan í sumarfrí. Þó er Fjórðungsþing á miðvikudag í fjarfundi, og stjórnarfundur hjá Vestfjarðastofu.