VERÐKÖNNUN FRÁVEITA Á ÞINGEYRI

Þingeyri
Þingeyri

 

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið „Fráveita á Þingeyri, lagnir fyrir yfirborðsvatn og skolp“

Í verkinu fellst að grafa fyrir fráveitulögnum, leggja nýjar lagnir og tengja við núverandi lagnir. Steypa inntaksþró fyrir ofanvatn.

Helstu stærðir eru:

Gröftur í götustæði 840 m³

Holræsalagnir 340 m

Vatnslagnir 150 m

Styrktarlag 200 m³

Burðarlag 100 m³

Verkinu skal vera að fullu lokið í 30. ágúst 2026.

Því sem á að malbika skal lokið fyrir 7. júlí

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti aj@verkis.is til þeirra sem þess óska frá og með 12. júní 2026. Tilboðin verða opnuð í fundarsal Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu, 2. hæð, 19. Júní 2026 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.