Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
573. fundur 18. júní 2026 kl. 17:00 - 17:48 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson bæjarstjóri
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir forseti
  • Sigurður Jón Hreinsson varamaður
    Aðalmaður: Svanfríður G Bergvinsdóttir
  • Helgi Karl Guðmundsson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir varamaður
    Aðalmaður: Jónas Þór Birgisson
  • Þóra Marý Arnórsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Margrét Jónasdóttir varamaður
    Aðalmaður: Stefán Hannibal Hafberg
  • Tinna Rún Snorradóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti óskar eftir að taka inn tvö mál á dagskrá með afbrigðum, með heimild í 16. gr. bæjarmálasamþykktar, sem yrðu nr. 6 og 7 á dagskrá, varðandi viðauka við fjárhagsáætlun vegna malbikunarframkvæmda ársins og forkaupsréttar að eignarhluta í Fjarðarstræti 16 á Ísafirði.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samþykkt 9-0.


Þá óskar forseti eftir því að þar sem hvorki 1. varaforseti né 2. varaforseti eru staddir á fundinum taki starfsaldursforseti, Kristján Þór Kristjánsson, við stjórn fundarins ef svo ber undir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samþykkt 9-0.

1.Siðareglur kjörinna fulltrúa 2026-2030 - 2026060043

Forseti leggur fram til staðfestingar siðareglur bæjarstjórnar 2026-2030 og verða þær sendar til rafrænnar undirritunar til bæjarfulltrúa.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson og Helgi Karl Guðmundsson.

Forseti bar tillögu um staðfestingu siðareglna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar - breyting 2026 - 2026050011

Forseti leggur fram til síðari umræðu og samþykktar breytingar á 8. og 48. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, í samræmi við minnisblað bæjarritara.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Sigurður Jón Hreinsson og Kristján Þór Kristjánsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Fundir bæjarstjórnar 2026-2030 - 2026040085

Lagt fram til samþykktar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 16. júní 2026, með tillögu um fundartíma bæjarstjórnar veturinn 2026-2027.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Sigurður Jón Hreinsson, Elísabet Samúelsdóttir, og Kristján Þór Kristjánsson.

Forseti óskaði eftir að Kristján Þór Kristjánsson, ad hoc varaforseti, tæki við stjórn fundarins kl. 17.11, meðan hún tók til máls. Tók Elísabet Samúelsdóttir aftur við stjórn fundarins kl. 17:13.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Stefna og stefnuleysi í íþróttamálum - 2026060141

Mál sett á dagskrá að beiðni Sigurðar J. Hreinssonar, varabæjarfulltrúa S-lista Samfylkingarinnar, varðandi stefnu og stefnuleysi Ísafjarðarbæjar í íþróttamálum, varðandi breytingar á HSV samningi sveitarfélagsins, úthlutun tíma í íþróttahúsum, reglum um úthlutun styrkja til afreksfólks og aðstöðu hestamannafélagsins Hendingar.

Tillaga málshefjanda er að málinu verði vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Sigurður Jón Hreinsson og Kristján Þór Kristjánsson, Marta Kristín Pálmadóttir, Sigurður Jón Hreinsson, Kristján Þór Kristjánsson og Þóra Marý Arnórsdóttir.

Forseti gerði fundarhlé kl. 17.29 og það samþykkt samhljóða. Fundi fram haldið kl. 17:32.

Þóra Marý Arnórsdóttir og Martha Kristín Pálmadóttir, bæjarfulltrúar D-lista Sjálfstæðisflokks, lögðu fram frávísunartillögu með eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks vilja árétta að málið hefur þegar fengið viðeigandi og ítrekaða meðferð innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Við þá meðferð hafa gögn málsins og sjónarmið aðila verið skoðuð í ljósi viðeigandi reglna, fjöldi funda haldinn, og unnið hefur verið með skýrum og faglegum hætti, með áherslu á jafnræði, gagnsæi og málefnaleg sjónarmið.

Það vekur furðu að forseti hafi sett málið á dagskrá að nýju, og við sjáum ekki tilefni til að veita því frekara vægi en þegar hefur verið gert, enda hafa fyrirliggjandi gögn og málsatvik verið metin á viðeigandi stjórnsýslustigum. Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að virða þá málsmeðferð og þær niðurstöður sem fyrir liggja.

Síendurtekin endurupptaka mála sem þegar hafa fengið fullnægjandi og málefnalega afgreiðslu grefur undan skilvirkni stjórnsýslunnar og dregur úr getu hennar til að sinna öðrum brýnum verkefnum í þágu íbúa. Þá er brýnt að standa vörð um starfsfólk sveitarfélagsins og nefndarmenn í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd, sem hafa unnið málið af heilindum og fagmennsku, og tryggja þannig að takmarkaður tími og mannauður stjórnsýslunnar nýtist með ábyrgum hætti í þágu heildarhagsmuna samfélagsins."

Forseti bar frávísunartillögu upp til atkvæða.

Eftirfarandi bæjarfulltrúar samþykktu tillögu um frávísun:

Tinna Rún Snorradóttir, Elísabet Margrét Jónasdóttir, Kristján Þór Kristjánsson, Elísabet Samúelsdóttir, Gylfi Ólafsson, Þóra Marý Arnórsdóttir og Martha Kristín Pálmadóttir.

Sigurður Jón Hreinsson greiddi atkvæði gegn frávísunartillögunni.
Helgi Karl Guðmundsson sat hjá við atkvæðagreiðslu.

Frávísunartillaga samþykkt 7-1.

5.Stjórn heilbrigðisnefndar Vestfjarða - 2026050220

Forseti bæjarstjórnar leggur til að Guðbjörg Þrastardóttir verði kosin formaður, Halldór Karl Valsson, aðalfulltrúi, og Hjalti Karlsson og Guðmundur Ólafsson verði varafulltrúar þeirra.
Til máls tók: Elísabet Samúelsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 - 09 - malbikun - 2025120020

Tillaga frá 1371. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. júní 2026, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 9 við fjárhagsáætlun 2026, vegna malbikunarframkvæmda ársins, í samræmi við minnisblað Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 16. júní 2026.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er engin.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 274.600.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og helst rekstrarniðurstaðan óbreytt í kr. 581.600.000.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Þóra Marý Arnórsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Forkaupsréttur - Fjarðarstræti 16 Ísafirði - 2026060126

Tillaga frá 1371. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. júní 2026, um að bæjarstjórn samþykki að Ísafjarðarbær nýti forkaupsrétt sinn að fasteigninni Fjarðarstræti 16, Ísafirði, fnr. 211-9491, og gangi inn í kaup samkvæmt kaupsamningi.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Kristján Þór Kristjánsson, og Sigurður Jón Hreinsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Bæjarráð - 1370 - 2606005F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1370. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. júní 2026.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Til máls tóku: Elísabet Samúelsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson og Helgi Karl Guðmundsson.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:48.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?