Skemmtiferðaskipasumarið 2025 að hefjast

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins 2025 leggst að bryggju á Ísafirði á morgun, þriðjudaginn 6. maí, og þar með hefst skemmtiferðaskipasumarið formlega.
197 skipakomur eru bókaðar frá 6. maí til 30. október. Samanlagður fjöldi farþega um borð í skipunum er að hámarki 267.300 en vert er að geta þess að nýting plássa um borð í skipunum er alla jafna um 70%. Hægt er að glöggva sig betur á bókuðum skipakomur til hafna Ísafjarðarbæjar á síðunni Skemmtiferðaskip 2025.
Íbúar og annað áhugafólk um komur skemmtiferðaskipa eru hvött til að fylgja Facebook-síðu Ísafjarðarhafnar þar sem settir eru inn fróðlegir pistlar og nánari upplýsingar um skipin sem heimsækja svæðið.
Stefna um móttöku skemmtiferðaskipa við hafnir Ísafjarðarbæjar 2024–27 tók gildi á síðasta ári en henni er ætlað að bæta upplifun gesta, minnka álag á samfélagið, bæta umhverfismál og tryggja sjálfbærni þessarar mikilvægu atvinnugreinar til lengri tíma.
Komur skemmtiferðaskipa skipta öllu máli fyrir rekstur hafna Ísafjarðarbæjar en tekjur af komum skemmtiferðaskipa árið 2024 voru 760 milljónir króna.
Sjá einnig: