Eyrin á Ísafirði, deiliskipulagsbreyting

Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkti þann 18. júní 2026 að auglýsa tillögu að breytingum á deiliskipulagi Eyrarinnar, vegna færanlegra kennslustofu við Eyrargötu á Ísafirði, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, unnið af ráðgjafa Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ, dags. 3. júní 2026.

Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Eyrin á Ísafirði sem samþykkt var 16. október 1997 og tók gildi árið 1998. Breyting sem tók gildi 18. febrúar 2019, var lóð Eyrarskjóls (Eyrargata 1) stækkuð til norðvesturs.

Deiliskipulagsbreytingin felst í því að ný 344 fm lóð er afmörkuð milli Eyrargötu 1 og 3, Eyrargata 1a. Markmið skipulagsbreytingarinnar er að skapa svigrúm fyrir tímabundna stækkun leikskólans Eyrarskjóls þar til varanlegar lausnir um aukið rými liggja fyrir.

Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar, leggur áherslu á að tekið verði tillit til umferðaröryggis á svæðinu.

Umsagnir og athugasemdir í skipulagsferlinu eru aðgengilegar í gegnum Skipulagsgáttina: www.skipulagsgatt.is mál nr. 821/2026 Aðeins er tekið við ábendingum rafrænt um skipulagsgáttina, frá og með 1. júlí 2026 og til og með 18. ágúst 2026.

Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar, skipulag@isafjordur.is veitir nánari upplýsingar og leiðbeiningar við rafrænar ábendingar. Tillagan verður einnig aðgengileg á uppdrætti ásamt greinargerð með forsendum breytinga, á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, www.isafjordur.is.

f.h. skipulagsfulltrúa
_______________________________

Helga Þuríður Magnúsdóttir
verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði

Greinargerð