Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 60

Hér er Aðalsteinn Óskarsson hjá Vestfjarðastofu að afhenda mér eintak af Kynningartillögu Svæðisskip…
Hér er Aðalsteinn Óskarsson hjá Vestfjarðastofu að afhenda mér eintak af Kynningartillögu Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050.

Dagbók bæjarstjóra dagana 23. febrúar - 1. mars 2026, í 60. viku í starfi.

Ég var léleg í að taka myndir þessa vikuna sem gerir það að verkum að ég er frekar illa undirbúin í dagbókarskrif þessa sunnudags, en látum okkur sjá…

Fulltrúar úr stjórn Víkingafélagsins heimsóttu mig á skrifstofuna í vikunni. Það er áhugi á að formgera samkomulag um víkingasvæðið á Þingeyri en félagið hefur haft veg og vanda af því og eins og fólk veit sem þangað hefur komið er það gert með miklum sóma.

Við gáfum okkur tíma til að velja og festa upp myndir á skrifstofunni minni eftir endurbæturnar í vetur. Rannveig frá Listasafninu og strákarnir í áhaldahúsinu aðstoðuðu við það.


Páll Brynjar og Rannveig báru sig mjög fagmannlega að við að koma myndum upp á veggi.

Ég, Erla skipulagsfulltrúi, Gunnar frá Verkís og Harpa og Magni á snjóflóðasetrinu áttum góðan fund um aðalskipulag og ofanflóð. Við ræddum um viðveru í húsum á hættusvæðum, viðverum í frístundahúsum, hættumatslínur og endurmat eftir að ofanflóðavarnir hafa verið reistar. Nú er t.d. verið að klára endurmat fyrir Seljaland/Múlaland.

Kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 er nú komin í Skipulagsgátt þar sem hún verður opin til umsagnar fram til 7. apríl. Sveitarfélögin átta á Vestfjörðum hafa samþykkt tillöguna en á kynningartímabilinu er kallað eftir athugasemdum frá Vestfirðingum og öðrum hagaðilum. Til að kynna tillöguna fyrir íbúum voru haldnir tveir kynningarfundir í liðinni viku, á Hólmavík og á Ísafirði. Fundinum á Patreksfirði varð að fresta vegna veðurs og er hann áformaður 10. mars. Fólk hefur sem sagt næstu vikurnar tækifæri til að skoða tillöguna og senda inn athugasemd eða umsögn. Svæðisskipulagsnefnd mun síðan fara yfir athugasemdir og leggja til breytingar eftir því sem við á í samráði við sveitarfélögin, áður en lokatillaga verður lögð fram sem ég vonast til að við náum fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor.


Kynningartillaga Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 var kynnt á opnum fundum í vikunni. Hér erum við í Edinborgarhúsi.


Dúi og Hrafnkell Proppe spjalla hér en Hrafnkell (frá Úrbana)hefur unnið að þessu verkefni með Vestfjaraðstofu, svæðisskipulagsnefnd og VSO ráðgjöf.

Það voru ákveðin vonbrigði að frétta af opnun tilboða í flug til Ísafjarðar. Ég átti ekki von á svona miklu fráviki frá kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Þar sem tilboð Icelandair í áætlunarflug til Ísafjarðar var um 2,2 milljörðum króna yfir áætlun Vegagerðarinnar. Nú er verið að yfirfara tilboðið og Vegagerðin að meta næstu skref, sem vonandi endar með samningi svo ekki verði rof á flugþjónustu hingað vestur. Viðmiðið er að þjónustan á grundvelli þessa útboðs taki gildi í lok sumars.

Ég nældi mér í flensu seinnipart vikunnar og voru fimmtu- og föstudagur frekar lélegir vinnudagar. Ég sinnti bara því allra nauðsynlegasa og svo tók helgin við með tilheyrandi hvíld til að ná mér almennilega af pestinni því fram undan er annasöm vika með hefðbundum fundum og einnig ýmsu öðru spennandi.


Við Dóra hittumst reglulega á morgunfundum ásamt fleiri félögum í Í listanum.

Ég náði þó í flensumókinu að hitta nokkur úr þingflokki Samfylkingarinnar sem voru á ferðinni hér á Suðureyri. Reyndar náði ég einnig góðum hlaupatúr með Örnu Láru eftir vinnu á þriðjudag, það var hressandi en mér varð drullukalt sem hefur kannski haft eitthvað að segja um heilsuleysi síðustu daga.


Kaffispjall með Samfylkingarfólki.


Þriðjudagsskokk með Örnu Láru.

Þriðjudaginn 3. mars kl. 15 verður vinnustofa hagaðila í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á vegum Ísafjarðarbæjar, Aldrei fór ég suður og Vestfjarðastofu. Markmiðið er að móta sameiginlega sýn um framtíð páskahalds á norðanverðum Vestfjörðum. Viðburðahald um páska hér fyrir vestan hefur vaxið jafnt og þétt og skapað mikil umsvif í samfélaginu. Nú er kallað eftir samtali hagaðila um áframhaldandi uppbyggingu. Klukkan 20 sama dag verður íbúafundur þar sem kynntur verður listi listamanna hátíðarinnar í ár.