Páskar fyrir vestan: Vinnustofa fyrir hagaðila
Ísafjarðarbær, í samstarfi við Aldrei fór ég suður og Vestfjarðastofu, boðar til vinnustofu fyrir öll sem starfa í veitingarekstri, ferðaþjónustu, verslun, opinberri þjónustu og viðburðahaldi á norðanverðum Vestfjörðum.
Páskarnir eru viðburðaríkustu og fjörugustu dagar ársins á norðanverðum Vestfjörðum og nú er áætlunin að stofna til samstarfs til að gera þá enn betri!
Löng hefð er fyrir miklu fjöri á Ísafirði og nágrenni um páskana. Fyrst var það Skíðavikan en svo fór gleðin á næsta stig með tilkomu Aldrei fór ég suður. Heimsóknartölur sýna jafna og þétta aukningu frá ári til árs og teygja viðburðir sig nú yfir allan Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og Súðavík.
Markmið vinnustofunnar er að vinna saman að því að gera páskana að sameiginlegu verkefni til framtíðar sem byggir á samvinnu, stolti og góðri móttöku gesta.
Vinnustofan fer fram í Edinborgarhúsinu þriðjudaginn 3. mars kl. 15-16:30.
Fundarstjóri: Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar.