Vinnslutillaga að nýju deiliskipulagi á Tunguskeiði (Í2)

Vinnslutillaga að nýju deiliskipulagi á Tunguskeiði (Í2)

Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 30. apríl 2026, að hefja kynningu á vinnslutillögu deiliskipulags fyrir innri hluta Tunguhverfis á Ísafirði. Hvati deiliskipulagsgerðarinnar er aukin eftirspurn eftir íbúðarlóðum en fáar lausar lóðir eru í Skutulsfirði. Með nýju deiliskipulagi er mótuð stefna um frekari uppbyggingu Tunguhverfis til að mæta eftirspurn eftir íbúðarlóðum í Skutulsfirði. Í Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 er gert ráð fyrir íbúðarbyggð í Tunguhverfi en ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir innri hluta hverfisins.

Skipulagssvæðið liggur innan við núverandi íbúðarbyggð í Tungudal í Skutulsfirði. Svæðið er um 5,6 ha að stærð. Afmörkun skipulagssvæðisins til austurs miðast við skipulagsmörk núverandi íbúðarbyggðar í Tunguhverfi. Að öðru leyti liggur svæðið að útivistarsvæðum í Tungudal. Sunnan skipulagssvæðisins er Vestfjarðavegur (60) en helgunarsvæði hans nær ekki til svæðisins.

Tilgangur deiliskipulagsins er að skapa svigrúm fyrir uppbyggingu íbúðarbyggðar í Skutulsfirði. Markmið Ísafjarðarbæjar með skipulagsgerðinni er að móta vandað nýtt íbúðarhverfi sem tekur mið af aðliggjandi íbúðarbyggð og hefur sterk tengsl við útivistarsvæði í Tungudal sem og náttúru og sögu svæðisins, í samræmi við áherslur gildandi aðalskipulags. Ísafjarðarbær leggur áherslu á að sjálfbær þróun og hagsmunir íbúa sveitarfélagsins verði hafðir að leiðarljósi við ákvarðanatöku um útfærslu íbúðarhverfisins. Með skipulagsgerðinni gefist íbúum og hagaðilum möguleiki á að hafa áhrif á sitt nærumhverfi.

Greinargerð – vinnslutillaga til kynningar

Umsagnir og athugasemdir í skipulagsferlinu eru aðgengilegar í gegnum Skipulagsgáttina: www.skipulagsgatt.is mál nr.1420/2024. Aðeins er tekið við ábendingum rafrænt um skipulagsgáttina, frá og með 1. júlí 2026 og til og með 25. ágúst 2026.

Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar, skipulag@isafjordur.is veitir nánari upplýsingar og leiðbeiningar við rafrænar ábendingar. Tillagan verður einnig aðgengileg á uppdrætti ásamt greinargerð með forsendum breytinga, á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, www.isafjordur.is.

Opið hús verður haldið í sal bæjarstjórnar, 2. hæð Stjórnsýsluhússins að Hafnarstræti 1 á Ísafirði, miðvikudaginn 19. ágúst 2026, milli klukkan 15 og 17.

Vakin er athygli á því að aðeins er um að ræða vinnslutillögu breytinga á deiliskipulagi en ekki formlega auglýsingu.

Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar