Staðan á tjaldsvæðum vegna almyrkva.

Aðsókn á tjaldsvæðum í Ísafjarðarbæ hefur aukist síðustu daga í aðdraganda almyrkvans og búast má við áframhaldandi fjölgun gesta næstu daga.

Á tjaldsvæðinu á Ísafirði er farið að þéttast og búast má við að þar fyllist fyrst. Gestir sem ætla að gista þar eru hvattir til að mæta snemma í dag til að tryggja sér stæði.

Á tjaldsvæðunum á Flateyri og Þingeyri er enn gott pláss og eru þau góður kostur fyrir þá sem hyggjast dvelja á svæðinu vegna almyrkvans.

Ekki er hægt að taka frá tjaldstæði fyrirfram og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Gestir eru því hvattir til að koma sér fyrir með góðum fyrirvara.

Við minnum jafnframt á að:

  • Fylgja leiðbeiningum starfsfólks og merkingum á svæðunum.
  • Sýna öðrum gestum tillitssemi og virða næturró.
  • Ganga vel um og flokka úrgang í þar til gerð ílát.
  • Fylgjast með upplýsingum um umferð, þjónustu og önnur atriði sem tengjast almyrkvanum.

Við hlökkum til að taka á móti gestum og vonum að allir njóti þess að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð á Vestfjörðum.

Almyrkvi á sólu 2026.

Almyrkvi á sólu: safnstaðir og fleira | Ísafjarðarbær