Almyrkvi á sólu: safnstaðir og fleira
Safnstaðir
Ísafjarðarbær hefur skilgreint safnstaði þar sem gert er ráð fyrir að íbúar og gestir geti komið saman til að fylgjast með myrkvanum.
Safnstaðirnir eru valdir vegna þess að þar eru nauðsynlegir innviðir til staðar, svo sem bílastæði, aðgangur að salernum og neysluvatni. Starfsfólk verður á hverjum stað á meðan sólmyrkvinn stendur yfir. Sólmyrkvagleraugu verða á staðnum meðan birgðir endast.
Íbúar eru hvattir til að njóta almyrkvans heima hjá sér eða í sínu nærumhverfi ef aðstæður leyfa. Gert er þó ráð fyrir að margir vilji fylgjast með viðburðinum í sameiningu og því verða eftirfarandi safnstaðir opnir:
Flateyri: Íþróttamiðstöðin
Ísafjörður: Íþróttahúsið á Torfnesi og Safnahúsið
Suðureyri: Íþróttamiðstöðin
Þingeyri: Íþróttamiðstöðin
Safnstaðir kort
Deildarmyrkvi hefst kl. 16:43, nær hámarki kl. 17:44 með almyrkva og lýkur kl. 18:43.
Við hvetjum gesti til að njóta þessa viðburðar fallega saman.
Gagnlegir tenglar
Fyrir nýjustu upplýsingar um almyrkvann, umferð, veður og öryggi bendum við á eftirfarandi vefi:
- Ísland.is – Almennar upplýsingar um almyrkvann, öryggisráð og þjónustu.
- Vegagerðin – Upplýsingar um vegalokanir, umferð og færð.
- Westfjords.is – Hagnýtar upplýsingar fyrir gesti á Vestfjörðum, meðal annars um vegalokanir, drónabönn og þjónustu (á íslensku og ensku).
- Veðurstofa Íslands – Veðurspár og sérstakur almyrkvavefur.
- Almannavarnir – Tilkynningar og mikilvægar öryggisupplýsingar.
- Lögreglan á Facebook – Nýjustu tilkynningar og uppfærslur.