Nýr páskavefur kominn í loftið
Nýr upplýsingavefur um viðburði, afþreyingu og þjónustu á norðanverðum Vestfjörðum um páskana er kominn í loftið.
Á www.paskar.is má nú finna yfirlit yfir alla þá viðburði sem boðið er upp á í Skíðavikunni, en einnig eru þar upplýsingar um veitingastaði á svæðinu, opnunartíma sundlauga og skíðasvæða og aðra afþreyingu.
Hugsunin er að íbúar og gestir sem ætla að njóta alls þess sem páskar fyrir vestan bjóða upp á geti auðveldlega fundið allar upplýsingar á einum stað. Á vinnustofu fyrir hagaðila um páskana fyrir vestan kom sérstaklega fram að bæta mætti upplýsingagjöf til gesta og íbúa og er nýr vefur skref í þá átt.
paskar.is á heimaskjá snjallsíma
Vefinn má einnig setja upp á heimaskjá flestum snjallsímum til þess að þurfa ekki að fletta honum upp í vafra.
- Í iPhone: Opnaðu www.paskar.is í Safari, farðu svo í valmyndina og smelltu á „Deila“-hnappinn. Veldu svo „Bæta við heimaskjá“.
- Í Android: Opnaðu www.paskar.is í Chrome, farðu svo í valmyndina (punktana þrjá ⋮) og veldu „Setja á heimaskjá“ og svo „Setja upp forrit“.
Viðburðahaldarar og aðrir sem vilja koma sínum upplýsingum á vefinn geta haft samband í netfangið upplysingafulltrui@isafjordur.is.