Laus lóð í Fífutungu

Einbýlishúsalóðin Fífutunga 4 í Tunguhverfi á Ísafirði er laus til úthlutunar. Í samræmi við grein 1.1. í lóðarúthlutunarreglum Ísafjarðarbæjar er 10 daga umsóknarfrestur um lóðina og berist fleiri en ein umsókn um lóðina ræður hlutkesti úthlutun.

Fífutunga 4 er 864 m² lóð og hámarksstærð byggingar er 345,6 m².

Berist engin umsókn um lóðin á auglýstum úthlutunartíma færist hún á lóðalista Ísafjarðarbæjar og verður þá úthlutað til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar, líkt og kveður á um í grein 1.3 í lóðarúthlutunarreglum.

Umsóknir berist í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.

Deiliskipulag Tunguhverfis