Kynning á vinnslutillögu nýs deiliskipulags frístundasvæðis í Dagverðardal

Yfirlit yfir skipulagssvæðið unnið af M11 arkitektum. Myndin gefur til kynna hugmyndir að útfærslum …
Yfirlit yfir skipulagssvæðið unnið af M11 arkitektum. Myndin gefur til kynna hugmyndir að útfærslum á byggingum en ekki er um endanlega hönnun að ræða.

Skipulags- og mannvirkjanefnd hefur vísað til kynningar vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi frístundasvæðis F14 í Dagverðardal í Skutulsfirði.

Skipulagið gerir ráð fyrir frístundabyggð með þjónustusvæði í Dagverðardal. Áætlað er að byggja 39 frístundahús á svæðinu þar sem vistvænar áherslur verða hafðar að leiðarljósi, bæði hvað varðar hönnun, efni, endingu og upphitun húsa og rask á náttúrunni. Breytingarnar eru í samræmi við vinnslu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 þar sem svæðið verður tekið úr landnotkun ætlað undir íbúðarbyggð.

Vinnslutillagan verður kynnt á opnu húsi á umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar, 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði, þriðjudaginn 12. mars 2024 frá klukkan 13 til klukkan 15.

Greinargerð

Skipulagsuppdráttur og þrívíddarmyndir