Jólaviðburðir hjá söfnum Ísafjarðarbæjar

Mynd: Safnahús Ísafjarðar.
Mynd: Safnahús Ísafjarðar.

Bókasafnið Ísafirði, Safnahúsið og Byggðasafn Vestfjarða bjóða upp á skemmtilega og notalega fjölskylduviðburði þessa síðustu viku fyrir jól.

Bókasafnið

Á bókasafninu er sögustund fyrir börn kl. 16:10 alla virka daga.

Jólasögustund á Bókasafninu Ísafirði

Föstudaginn 19. desember verður boðið upp á rólegt jólaföndur kl. 16:00-18:00.

Jólaföndur á Bókasafninu Ísafirði

Pottaskefill kíkir í heimsókn á bókasafnið laugardaginn 20. desember kl. 14. Kakó og piparkökur fyrir gesti.

Jólasveinn í heimsókn... aftur!

Safnahúsið

Í Safnahúsinu bjóða nemendur grunnskólanna á Flateyri, Þingeyri og Suðureyri upp á jólasýningu sem stendur frá 16. desember-5. janúar.

Jólin koma - koma jól, jólasýning í Safnahúsinu

Byggðasafnið

Byggðasafn Vestfjarða býður upp á jólasýningu og jólabúð í Krambúðinni í Neðstakaupstað. Heitt súkkulaði og smákökur!

  • 18. desember kl. 15:00-18:00
  • 20. desember kl. 12:00-17:00
  • 21. desember kl. 12:00-17:00
  • 23. desember, jólabúðin opin kl. 10:00-14:00

Jólasýning og jólabúðin opin í Krambúðinni


Fjölmargir aðrir viðburðir eru framundan í sveitarfélaginu, þá er hægt að kynna sér í viðburðadagatali Ísafjarðarbæjar