Fasteignagjöld 2024

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2024 hafa verið birtir á þjónustugátt Ísafjarðarbæjar og á minarsidur.island.is. Greiðsluseðlar verða sendir út í framhaldinu. Sundurliðun fasteignagjalda er eingöngu aðgengileg á álagningarseðli en ekki á greiðsluseðli.

Frekari upplýsingar um álagningu fasteignagjalda og greiðslufyrirkomulag má finna í samantekt um fasteignagjöld.

Fasteignagjöld eru innheimt mánaðarlega, fyrir utan fasteignagjöld sem eru 45.000 kr. eða lægri, þau eru innheimt með einum gjalddaga, 15. apríl.

Nánari upplýsingar og aðstoð við að:

  • fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum
  • fá senda álagningarseðla
  • senda inn erindi vegna fasteignagjalda

má fá með því að senda fyrirspurn á fasteignagjold@isafjordur.is eða í síma 450 8000.

Fasteignamat er framkvæmt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og hækkaði um 14,2% í Ísafjarðarbæ frá árinu 2023. Ef fasteignamat íbúðarhúsnæðis er skoðað eftir byggðakjörnum þá hækkaði fasteignamatið mest í sérbýli á Þingeyri, eða um 41,0%.

Matssvæði íbúðarhúsnæðis

% breyting fyrir sérbýli

% breyting fyrir fjölbýli

Ísafjörður: Eldri byggð

15,7%

15,5%

Ísafjörður: Nýrri byggð

7,8%

24,4%

Hnífsdalur

29,0%

23,0%

Suðureyri

6,3%

4,2%

Flateyri

34,0%

18,8%

Þingeyri

41,0%

24,1%

Hornstrandir

0,0%

0,0%

Fasteignagjöld sveitarfélagsins eru lögð árlega á flestar fasteignir í sveitarfélaginu sem metnar eru fasteignamati samkvæmt fasteignaskrá. Hlutfall fasteignaskatts lækkar á íbúðarhúsnæði árið 2024 og verður 0,54% af hús- og lóðarmati. Hlutfall fasteignaskatts af öðrum fasteignum verður áfram 1,65% af hús- og lóðarmati. Heildarhækkun tekna vegna fasteignagjalda árið 2024 er 8,54% miðað við tekjur ársins 2023. Fasteignagjöld 2024 eru áætluð 967 m.kr.

Hægt er að fá aðstoð eða gera athugasemdir við innheimtu með því að senda tölvupóst á innheimta@isafjordur.is eða hringja í síma 450 8000.

Kærufrestur á álagningu er til 28. febrúar 2024.

Nánari upplýsingar um fasteignagjöld 2024