Einfaldar leiðir til að fylgjast með því sem er að gerast í Ísafjarðarbæ
Ísafjarðarbær býður upp á þrjár einfaldar og gagnlegar leiðir fyrir íbúa til að fylgjast með því sem er að gerast í sveitarfélaginu, bæði á sviði stjórnsýslunnar sem og á sviði viðburða og tómstunda.
Vikulegt fréttabréf Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær sendir út vikulegt fréttabréf með helstu fréttum síðustu daga og þá viðburði sem eru framundan. Fréttabréfið er þægileg leið til að vera upplýst um það sem er að gerast í sveitarfélaginu. Til að fá fréttabréfið sent þarf að skrá sig á póstlistann.
Viðburðadagatal á vef Ísafjarðarbæjar
Á vef Ísafjarðarbæjar er viðburðadagatal þar sem hægt er að fylgjast með viðburðum sem fara fram í Ísafjarðarbæ. Þau sem standa fyrir viðburðum eru hvött til að senda inn viðburði í dagatalið og halda því þannig lifandi.
Lífið í Ísafjarðarbæ – rafræn íbúahandbók
Á vefnum Lífið í Ísafjarðarbæ – lifid.isafjordur.is má finna upplýsingar um tómstundir, félagsstarf, menningu, íþróttir og útivist í Ísafjarðarbæ. Vefurinn er uppfærður reglulega og eru ábendingar íbúa um uppfærslur eða efni sem ætti heima á vefnum vel þegnar. Ábendingar má senda á upplysingafulltrui@isafjordur.is.