Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 65
Dagbók bæjarstjóra dagana 30. mars-5. apríl 2026, í 65. viku í starfi.
Í vikunni var ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2025 lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Rekstur Ísafjarðarbæjar gekk vel árið 2025 og heldur því áfram að styrkjast. Reksturinn skilaði afgangi sem nemur 671 milljónum króna. Á árinu 2025 lækkuðu skuldir Ísafjarðarbæjar úr rúmum 5,8 milljarði króna niður í 3,8 milljarða króna. Ráðdeild í rekstri er nauðsynleg en ef ársreikningurinn og sundurliðunarbækur eru rýnd þá má glögglega sjá að stjórnendur eru með puttann á púlsinum. Rekstrartekjur sveitarfélagsins (A og B hluta) á árinu námu 9.161 m.kr. en það var hækkun um 572 m.kr. á milli áranna 2024 og 2025. Þar af voru rekstrartekjur A hluta 7.083 m.kr. kr. Sem er hækkun upp á tæpar 319 m.kr. á milli ára. Nánar má lesa um niðurstöður ársreikninginn í pistli sem finna má á heimasíðu Ísafjarðarbæjar: Pistill bæjarstjóra um ársreikning 2025

Skíðavikustjóri og bæjarverkstjóri
Skíðavikan var sett með glæsibrag á Silfurtorgi á miðvikudag og þar með fór í gang skemmtilegt páskafrí sem enn er ekki lokið.

Systurnar Jóhanna og Arnheiður kepptu í þjóðbúning.

Nanný Arna og Arna Lára í sprettgöngunni.

Arna Lára og Nanný Arna.
Það var mikið að gera í félagslífinu. Við Nanný kíktum á loppumarkaðinn í Turnhúsi, við Dúi fórum á frábæra styrktartónleika í Bolungarvík á miðvikudag. Á fimmtudag fengum við gesti með okkur í morgunskokk í Súganda, þá aðstoðaði ég Dúa minn í að undirbúa fiskhlaðborð á Fisherman sem fór fram á fimmtudagskvöld, þar var fullt hús og mikil gleði og stemming.

Loppumarkaður í Turnhúsinu.

Styrktartónleika í Bolungarvík.

Morgunskokk í Súganda.

Undirbúa fiskhlaðborð á Fisherman.
Á föstudag syntum við og fengum okkur pylsu en hollvinasamtök Hofsú stóðu fyrir pylsusölu um páskana í sundlauginni á Suðureyri. Við fórum á listsýningu í Listasafninu en það var opnun einkasýningar Judithar Amalíu Jóhannsdóttur, handan / við. Okkur var svo boðið í fisksúpu í Hnífsdal, til Jósefs og Hrafnhildar en það er hefð þar á bæ að bjóða fjölskyldunni og vinum barnanna þeirra fisk á föstudaginn langa. Eftir það fór ég á vaktina í Aldrei búðinni. Þá skemmtum við okkur á Aldrei og það var eins og við var að búast, fjölmenni og gleðin var við völd.
Pylsa eftir sund.
Judith Amalía í listasafninu.
Myndrænt verk Judithar.
Aldrei.
Á laugardag tókum við skokktúr í Engidal, svo fórum við á hádegishlaðborð í Tjöruhúsinu, fórum í sund og afmæli. Páskadag byrjuðum við með því að skella okkur í Fjörugusu, í fyrsta sinn og það var alveg magnað. Síðan sungum við í messu í Suðureyrarkirkju og erum núna að bruna suður í fermingu til systursonar míns.

Skokktúr í Engidal.


Fjörugusan.

Kóræfing.

Fiskiveisla í Tjöruhúsinu.

Njóta í fjörugusunni.
Takk fyrir frábæra páska!