Pistill bæjarstjóra um ársreikning 2025
2025 er ár skuldalækkunar
Í þessum pistli verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum ársreiknings Ísafjarðarbæjar en ársreikningur er lagður fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 1. apríl 2026
Styrk fjármálastjórn
Rekstur Ísafjarðarbæjar gekk vel árið 2025 og heldur því áfram að styrkjast. Reksturinn skilaði afgangi sem nemur 671 milljónum króna.
Á árinu 2025 lækkuðu skuldir Ísafjarðarbæjar úr rúmum 5,8 milljarði króna niður í 3,8 milljarða króna. Munar þar mest um söluna á fasteigninni sem hýsir hjúkrunarheimilið Eyri og sölu eigna á Suðureyri og Þingeyri til Brákar íbúðarfélags.
Ráðdeild í rekstri er nauðsynleg en ef ársreikningurinn og sundurliðunarbækur eru rýnd þá má glögglega sjá að stjórnendur eru með puttann á púlsinum. Það munar um þau útboð sem farið var í á árinu sem snúa að þjónustukaupum. Það er einnig ljóst að þar sjáum við tækifæri og nefni ég hér dæmi er lýtur að orkukostnaði þegar settar voru upp varmadælur við íþróttamiðstöðina á Þingeyri sem strax gefa til kynna að um mikinn sparnað er að ræða.
Stjórnendur fylgja góðu vinnuferli sem snýr að því að ef teikn eru á lofti um breytingar á gjalda- eða tekjulið í rekstraráætlun að gerður viðauki við fjárhagsáætlun sem hjálpar stjórnendum og bæjarfulltrúum að fylgjast með fjárhagsstöðunni . Má þar nefna sem dæmi að Jöfnunarsjóður sendir jafnan út uppfærðar áætlanir um framlög nokkrum sinnum á ári og höfum við brugðist við með því að gera viðauka til að uppfæra áætlanir ársins. Sömuleiðis er gerður viðauki ef við stöndum frammi fyrir óvæntum útgjöldum.
Forsendur
Áður en rekstrarniðurstöður ársins 2025 eru rýndar er mikilvægt að gera grein fyrir þeim forsendum sem liggja að baki. Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki (íbúðarhúsnæði) var 0,50% en lögbundið hámark hans er 0,625% með álagi. Í B-flokki (opinberar stofnanir) nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hámark þess og í C-flokki (atvinnustarfsemi/fyrirtæki) nam álagningarhlutfallið 1,65% sem er lögbundið hámark þess með álagi.
Rekstrarniðurstaða
Rekstrartekjur sveitarfélagsins (A og B hluta) á árinu námu 9.161 m.kr. en það var hækkun um 572 m.kr. á milli áranna 2024 og 2025. Þar af voru rekstrartekjur A hluta 7.083 m.kr. kr. Sem er hækkun upp á tæpar 319 m.kr. á milli ára.
Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð, en auk hans eru Eignasjóður og Þjónustumiðstöð auk hlutdeildar sveitarfélagsins í samstarfsverkefnum.
Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Byggðasafn Vestfjarða, Eyri, Fasteignir Ísafjarðar ehf., Fráveita, Funi , Hafnarsjóður, Vatnsveita og Þjónustuíbúðir Hlífar auk hlutdeildar sveitarfélagsins í samstarfsverkefnum.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 671 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 314 m.kr. Rekstrarafgangur er því 357 m.kr. hærri en áætlað var.
Rekstrarniðurstaða A hluta fyrir árið 2025 sýnir neikvæða niðurstöðu upp á 387,9 m.kr. Fjárhagsáætlun fyrir sama tímabil gerir ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 606,8 m.kr. Rekstrarniðurstaðan er því 218,9 milljón krónum betri en áætlað var.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.948 m.kr (var 3.031 m.kr. 2024) samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta lækkaði um 142 m.kr. á milli ára.
Skuldahlutfall, skuldaviðmið og veltufé
Heildarskuldir og skuldbindingar í hlutfalli við reglulegar tekjur er kallað skuldahlutfall, en það segir til um hve stór hluti af heildareignum er fjármagnaður með lántöku. Þegar litið er til samstæðunnar í heild (A+B) er skuldahlutfallið að lækka, það er 88,4% árið 2025 en var árið 2024 111,7%. Skuldahlutfallið hjá A hluta hækkaði lítillega á milli ári og er 111,8% árið 2025 en var 108,3% árið 2024. Ástæða þessa er áhrif af sölunni á Eyri sem verður vikið að síðar í þessum pistli.
Skuldaviðmið A og B hluta (sem eru skuldir að teknu tilliti til ákveðinna frádráttarliða) er 57,7% og fyrir A hluta 74,4% .
Veltufé frá rekstri er að lækka á milli ára sem skýrist af sölunni á Eyri. Veltufé frá rekstri í hlutfalli við rekstrartekjur er 14,5% en var 19,5% á árinu 2024. Handbært fé hækkaði lítillega frá fyrra ári og var handbært fé í árslok 2025 kr. 683 m.kr.
Salan á fasteigninni sem hýsir Eyri
Aðdragandi sölunnar er nokkuð langur og nær til ársins 2024 þegar samþykkt var í bæjarstjórn að hefja söluferli og auglýsa fasteignina til sölu. Afsal vegna sölu á fasteigninni sem hýsir hjúkrunarheimilið Eyri var undirritað föstudaginn 19. desember 2025 og húsnæðið formlega afhent nýjum eigendum. Kaupendur húsnæðisins voru félagið Safnatröð slhf., sem er í eigu innviðasjóðsins Innviðir fjárfestingar II slhf., sjóðs í eigu nokkurra lífeyrissjóða. Kaupverð fasteignarinnar var einn milljarður króna. Sala húsnæðisins hefur ekki áhrif á þá þjónustu sem veitt er á hjúkrunarheimilinu, en hún verður áfram alfarið í höndum Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, óháð eignarhaldi fasteignarinnar.
Fjárhagsleg áhrif sölunnar á Aðalsjóð Ísafjarðarbæjar er umtalsverð en hún er einskiptis aðgerð og ætti því ekki að hafa bein áhrif á ársreikninga framtíðarinnar nema að því leyti að ekki er um að ræða meðgjöf við rekstur fasteignarinnar eða vaxtakostnað vegna lána. Framlag Aðalsjóðs vegna Eyrar nam 625. m.kr., sem kemur þá skýrt fram í afkomu A hluta á árinu 2025.
Lán sem hvíldu á eigninni voru 1.537 m.kr. Við söluna voru greiddar upp 965 m.kr. og yfirtók kaupandi 487 m.kr. og yfirtók Eignasjóður 84 m.kr.
Greiðsla kaupverðs að frádregnu yfirteknu láni kaupanda nam 512 m.kr. Uppgreiðsla lána umfram kaupverð nam 453 m.kr., sem hefur bein áhrif á útkomu A hluta.
Nánar má lesa um söluna á Eyri í grein sem birtist hér.
Framkvæmdir
Á árinu 2025 var framkvæmt fyrir tæpar 900 m.kr. Stærstu verkefnin voru á höfninni og fráveituframkvæmdir og gatnagerð. Þá hófust framkvæmdir við byggingu nýrrar slökkvistöðvar en fyrsta skóflustungan var tekin 5. september 2025 og var þar stórt skref stigið í rétta átt.
Uppsöfnuð viðhaldsþörf er mikil hjá sveitarfélaginu og einkennandi að það eru margir fermetrar að bítast um það fjármagn sem er áætlað í málaflokkinn. Ljóst er að gera þarf betur þar, en viðhald Eignasjóðs var í heild sinni rúmar 200 m.kr á árinu 2025.
Þakkir
Í lokin vil ég þakka starfsfólki fyrir vel unnin störf og bæjarfulltrúum öllum fyrir einstaklega gott samstarf. Við höfum verið samtaka á liðnu ári eins og raunar allt þetta kjörtímabil og það ber að þakka.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
Bæjarstjóri
Fylgiskjöl: