Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 62
Dagbók bæjarstjóra dagana 9.-15. mars 2026, í 62. viku í starfi.
Þessi vika einkenndist af heilmiklum fundahöldum og flakki um bæjarfélagið.
Á mánudaginn fórum við Margrét Geirs og Svanlaug öldrunarfulltrúi i heimsókn í félagsstarf aldraðra á Flateyri. Það tókst að koma því á fót nýverið, starfsmaður ráðinn og gert samkomulag við Bryggjukaffi um að hýsa starfið. Það fer vel af stað og vonumst við til að fólks verði duglegt að nýta sér þessa þjónustu.
Eftir innlitið á Bryggjukaffi fórum við Margrét í Skúrina, þar hittum við nokkra íbúa og áttum ágætis spjall þar.

Margrét sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra á Flateyri og Svanlaug öldrunarfulltrúi að spjalla á Bryggjukaffi.
Í vikunni voru haldnir fjórir vinnufundir vegna endurskoðunar menntastefnu Ísafjarðarbæjar. Þessir fundir voru vel sóttir en um var að ræða lið í endurskoðun á núgildandi menntastefnu Ísafjarðarbæjar sem stendur yfir og af því tilefni var boðað til opinna funda í þeim byggðakjörnum sveitarfélagsins sem grunnskólar og leikskólar eru. Fundirnir eru mikilvægur liður í endurskoðuninni og er ætlað að gefa öllum íbúum tækifæri til að koma að því að móta nýja stefnu og koma sínum áherslum á framfæri. Fundunum var stýrt af Sverri Óskarssyni sem er sérfræðingur í menntamálum. Fram fór hópavinna þar sem fjallað var um ýmsa liði skólastarfsins. Niðurstaða þessara funda verður nýtt til áframhaldandi vinnu við stefnuna, en ef allt gengur eftir ætti hún að birtast íbúum til umsagna og athugasemda áður en lokahönd verður lögð á hana.

Nanný formaður skóla- íþrótta- og tómstundanefndar á menntastefnufundi á Flateyri.

Sverrir ráðgjafi og Hafdís sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs á menntastefnufundi á Suðureyri.

Á menntastefnufundi á Þingeyri.

Á menntastefnufundi á Ísafirði.

Á menntastefnufundi á Flateyri.
Það var góð mæting á alla fundina og gaman að sjá og heyra hvar áherslur íbúa eru. Það voru ólíkar áherslur á milli byggðakjarna en heilt yfir þá var fólk sammála um að vellíðan nemenda ætti að vera okkar leiðaljós en það yrði gert með m.a. góðu samstarfi heimilis og skóla, metnaðarfullu faglegu starfi og öruggu umhverfi.
Þá er mikilvægt að halda því til haga að það er ekki nóg að gera fallega stefnu, henni þarf að fylgja aðgerðaráætlun sem unnið verður eftir og ég vona svo sannarlega að okkur beri gæfa til þess. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu verkefni.
Velferðarsvið flutti aftur á sinn stað í Stjórnsýsluhúsinu. Þar er framkvæmdum lokið. Þá eigum við bara eftir að fá skóla- og tómstundasvið sem og umhverfis-og eignasvið í hús en lagfæringar á húsnæði þeirra er á lokametrunum. Ég vona að þau nái að flytja fyrir páska, kannski er það bjartsýni, sjáum til.
Eðlilega var starfsfólk ánægt með að velferðarsvið er aftur komið í stjórnsýsluhúsið.

4. hæðin, þar sem umhverfis- og eignasvið og skóla- og tómstundasvið eru til húsa. Viðgerðir eru á lokametrunum.
Við Helga í launadeildinni og Edda fjármálastjóri funduðum með sviðsstjórum og hafnarstjóra í vikunni, en við erum að skoða launaáætlanir allra deilda eftir fyrstu tvo mánuði ársins og erum að endurskoða áætlanir m.t.t. útkomu janúar og febrúar. Það er sem sagt í vinnslu viðauki þar sem við erum að rétta af áætlunina. Stundum hefur verið ofáætlað og annarsstaðar vanáætlað. Við viljum hafa þetta rétt og því erum við í þessari skoðun.
Það var efnismikill fundur í bæjarráði á fimmtudag. Hægt er að nálgast fundargerðina á vefnum.
Á föstudaginn hélt Védís yfirbókari upp á 30 ára starfsafmæli hjá bænum. Ég verð að segja að á þeim stutta tíma sem ég hef verið í starfi þá hef ég ósjaldan leitað til hennar til að „fletta upp í henni“, það er ómetanlegt og seint fullþakkað traustið sem hún sýnir vinnustaðnum. Til hamingju og takk Védís!

Védís yfirbókari og Edda fjármálastjóri.
Veturinn kom. Loksins segja sumir. Ótrúlegt hvað hefur kyngt mikið niður á stuttum tíma. Snjómokstursfólk hefur gert sitt besta til að þjónusta okkur íbúana og eru þeim þakkir færðar. Snjóflóð hafa fallið víða í sveitarfélaginu og sem betur fer hef ég ekki heyrt af neinu tjóni. Það er líka gott að fólk sé ekki að þvælast að óþörfu í slíku veðri eins og hefur verið í dag.
Síðdegis á föstudag sat ég stjórnarfund vinstri grænna í fjarfundi. Mér líst vel á stjórnina og hlakka til næstu tveggja ára með þessu öfluga fólki sem kemur úr ýmsum áttum.
Þrátt fyrir leiðindaveður undanfarið þá „dúraði“ í gær og við Dúi nýttum tækifærið og fórum út að hlaupa. Það var indælt. Svo voru bara rólegheit hér heima. Hallgrímur Helgason er búinn að stytta okkur stundirnar hér í óveðrinu „Sextíu kíló af sunnudögum“ er bókin og já, ég kann vel við Storytel. Þá getur maður nefnilega gert ýmislegt annað á meðan maður hlustar á góðar bækur.

Hlaupatúr á Súganda.

Hlupum út fyrir Spilli, kanna aðstæður. Vorum vör um okkur en þarna hafa fallið nokkur flóð síðustu daga. Þorðum ekki alla leið, enda versti parturinn nær Staðardal.

Vegurinn út fyrir Spilli, áleiðis út í Staðardal.