Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Trúnaðarmál fyrir bæjarráð - 2025110092
Trúnaðarmál lagt fyrir bæjarráð.
Trúnaðarmál kynnt í bæjarráði.
2.Pollgata - Göngustígur, lagnir og færsla sjóvarna - 2026030069
Lagt fram minnisblað Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, 5. mars 2026, vegna Pollgötu, göngustíga, lagna og færslu sjóvarna.
Bæjarráð samþykkir að undirbúningi verði haldið áfram í samræmi við minnisblað sviðsstjóra, dags. 5. mars 2026.
Málinu vísað til fundar hafnarstjórnar til kynningar, og óskar eftir að Axel Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs, verði boðaður til fundarins.
Málinu vísað til fundar hafnarstjórnar til kynningar, og óskar eftir að Axel Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs, verði boðaður til fundarins.
Gestir
- Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:55
3.Gleiðarhjalli, mótvægisaðgerðir - 2019080049
Lagður fram tölvupóstur frá Hannesi Árnasyni, hjá Framkvæmdasýslu Ríkisins, dags. 5. mars 2026, vegna fyrirhugaðs útboðs á lokafrágangi við áningarstaði meðfram ofanflóðagörðum við Gleiðarhjalla, auk útboðsgagna til samþykktar vegna framkvæmdarinnar.
Bæjarráð samþykkir útboðsgögn vegna lokafrágangs við áningarstaði meðfram ofanflóðagörðum við Gleiðarhjalla.
4.Strenglagning - Sauðanes - 2026030056
Lagt fram erindi frá Birni Davíðssyni, f.h. Snerpu ehf., vegna fyrirhugaðar strenglagningar frá Staðardal í Súgandafirði, fyrir Sauðanes, yfir Klofningsheiði og niður Klofningsdal að Flateyri.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið en beinir því til málsaðila að senda inn fyrirspurn um matsskyldu til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Þá vísar bæjarráð málinu til afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Varðandi beiðni málsaðila um styrk að fjárhæð kr. 2.400.000 vegna framkvæmdarinnar, tekur bæjarráð jákvætt í beiðnina, en mun taka afstöðu til hennar eftir afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar og HMS, og þegar frekari tímalína liggur fyrir um verkefnið. Verður erindið tekið aftur fyrir síðar á fundi bæjarráðs.

5.Malbikun 2026 - Ísafjarðarbær - 2026030111
Lögð fram til kynningar yfirlitsmynd frá Verkís hf. vegna malbikunaráforma sumarið 2026.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma með hugmyndir að vægum úrræðum til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi, s.s með yfirborðsmerkingum og hraðalækkandi aðgerðum, og leggja fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd.

6.Hrafnatangi 4, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2025030093
Á 668. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar var lögð fram umsókn Hallvarðar Aspelund f.h. Nora Seafood ehf. um að skipta gatnagerðargjöldum í þrjá hluta með vísan í 9 gr. samþykktar Ísafjarðarbæjar Nr. 1171/2025 um um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu og stofngjald holræsa í Ísafjarðarbæ.
Samhliða umsókn er lögð fram áfangaskipting framkvæmdar með hliðsjón af greiðslum gjaldanna ásamt minnisblaði Kristjáns Svan Kristjánssonar, byggingarfulltrúa, dags. 25. febrúar 2026. Óskað er eftir afstöðu nefndarinnar vegna málsins.
Nefndin vísaði málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir umsókn málsaðila og tillögu í minnisblaði byggingafulltrúa um áfangaskiptingu framkvæmdar og greiðslu gjalda.
Axel yfirgaf fund kl. 9.35.
7.Þjónustusamningur Björgunarsveitin Björg - 2025110114
Lagður fram til samþykktar þjónustusamningur við Björgunarsveitina Björgu á Suðureyri, en samningurinn er til 5 ára.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þjónustusamning við Björgunarsveitina Björgu á Suðureyri fyrir árin 2026-2030.
8.Byggðakvóti fiskveiðiársins 2025-2026 - 2025120183
Lagðar fram til staðfestingar 19 yfirlýsingar um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Bæjarráð staðfestir 19 meðfylgjandi yfirlýsingar um vinnslu afla.
9.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum - 2026010014
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefndar- og greiningarsviði Alþingis dags. 5. mars 2026, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 499. mál "Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón)" Umsagnarfrestur er til og með 19. mars 2026 á umsagnagátt Alþingis.
Lagt fram til kynningar.
10.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - sveitarstjórnarlög - 2026010014
Lögð fram umsagnarbeiðni frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dags. 6. mars 2026, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 505. mál "sveitarstjórnarlög". Umsagnarfrestur er til og með 20. mars 2026. Umsagnir skulu berast í umsagnargátt Alþingis.
Lagt fram til kynningar.
11.Ársreikningur 2025 - Náttúrustofa Vestfjarða - 2026030125
Lagður fram til kynningar ársreikningur Náttúrustofu Vestfjarða 2025.
Lagt fram til kynningar.
12.Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2026020009
Lögð fram til kynningar fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 3. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.
13.Menningarmálanefnd - 179 - 2602024F
Lögð fram til kynningar fundargerð 179. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 5. mars 2026.
Fundargerðin er í 4 liðum.
Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.
14.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 668 - 2602017F
Lögð fram til kynningar fundargerð 668. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 5. mars 2026.
Fundargerðin er í 18 liðum.
Fundargerðin er í 18 liðum.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:50.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?