Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 58

Stútungsnefnd 2026 að taka lokalagið.
Stútungsnefnd 2026 að taka lokalagið.

Dagbók bæjarstjóra dagana 9.–15. febrúar 2026, í 58. viku í starfi.

Jæja gott fólk. Þessi vika var eins og sú síðasta, vinna á daginn, æfingar á kvöldin. Í þetta sinn fyrir Stútung.

Vinnuvikan var mjög drjúg. Í mörg horn að líta og allskonar verkefni. Verkefni sem fólust í að skrifa t.d. umsögn um samgönguáætlun.

Svæðisskipulagsnefndin fundaði þar sem uppsett tillaga að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025 - 2030 er tilbúin til auglýsingar en nú fer í gang auglýsingaferli og gefst þá fólki tíminn fram yfir páska til að skrifa umsagnir. Við munum standa fyrir kynningarfundum nú í febrúarlok þar sem fólk fær tækifæri til að kynna sér tillöguna. Fundirnir verða þrír, á Hólmavík 24. febrúar, á Ísafirði 25. febrúar og á Patreksfirði 26. febrúar. Allir fundirnir munu hefjast kl 17 og verða þeir auglýstir í vikunni.

Bæjar- og sveitarstjórar, ásamt fulltrúum frá heilbrigðisnefndum, fjórðungssamböndum og Sambandi íslenskra sveitarfélaga áttu fund með fulltrúum umhverfis- orku og loftslagsráðuneytisins og atvinnuvegaráðuneytisins þar sem þau fóru yfir breytingar á regluverki er snýr að heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga. Við áttum síðan góðan fund í lok vikunnar (bæjar- og sveitarstjórar) til að fjalla um þetta mál en hjá okkur í Ísafjarðarbæ tók umhverfisnefnd þetta á dagskrá hjá sér og verður umsögn um þessar breytingar skilað í komandi vinnuviku.

Bæjarráð var með efnismikinn fund og fór töluverður tími í að undirbúa hann, eins og gengur. Þá áttum við Jóna Símonía og Edda fjármálastjóri góðan fund vegna Byggðasafnsins. Ég fundaði með sviðsstjórum þar sem farið var yfir starfsáætlanir þeirra vegna ársins í ár. Aldrei hópurinn, ég, Annska og Tinna funduðum í vikunni en í undirbúningi er hagaðilafundur sem mig minnir að ég hafi verið búin að segja frá áður. Á föstudaginn áttum við Erla skipulagsfulltrúi og Axel sviðsstjóri góðan fund með fulltrúum Orkubúsins og Vegagerðarinnar þar sem við ræddum Pollgötuna en eins og fólk veit kannski af þá þarf að bæta sjóvarnirnar þar og svo er spurning um samlegð varðandi innviði eins og t.d. heitavatnslagnir.


Hitti þennan hressa hóp í einhverju hádeginu í vikunni.


Kom við á Gunnukaffi á föstudaginn en þá var Erla skipulagsfulltrúi með viðtalstíma.

Jæja, tvö þorrablót, helgi eftir helgi, held það sé þá bara komið gott af þeim, á þessu ári í það minnsta. Held það verði reyndar langt í að ég sé í skemmtinefnd á tveimur stöðum sama árið, en þetta var gaman. Mikil törn, lítið sofið en ótrúlega skemmtilegt. Það er svo gaman að vinna með fólki sem maður annars hefur ekki átt mikið samneyti með fyrr og þetta er sannarlega góð leið til að kynnast fólki á annan hátt. Stútungur (þorrablót Flateyringa) tókst vel en þetta er í fyrsta sinn sem fólk mætir með mat í trogum en hingað til hefur verið hlaðborð. Skemmtiatriðin voru blanda af atriðum sem voru tekin upp fyrirfram og atriði á sviði. Í dag var svo tiltekt og frágangur.


Í opnunaratriðinu á Stútungi var nefndarfólkið í svona geggjuðum jökkum, Völundur Tumi kom í heimsókn til afa og ömmu og fékk að máta.


Hvað er betra en vel barinn harðfiskur?


Dúi skellti í hveitikökur....aftur.


Trogið er vel nýtt þetta árið!


Hanna Maggý Stútungsformaður kvenna að púsla saman handritinu.


Ívar formaður karla í Stútungsnefnd.


Stútungsnefnd 2026.


Ég og Dagur vorum kynnar á sviði í „Flateyrarspeglinum“ sem Addú og Sindri. Þarna erum við með orginölunum...

Framundan er „venjuleg“ vika, ég hlakka til að hafa tíma til að fara út að hlaupa eftir vinnu og fara snemma að sofa.


Kvefélagið Ársól á Suðureyri hélt aðalfund sinn í vikunni, ég mætti þar og þarna eru veitingarnar.