Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Trúnaðarmál atvinnumál - 2026020072
Trúnaðarmál lagt fyrir bæjarráð
Trúnaðarmál kynnt fyrir bæjarráði.
2.Þjónusta sveitarfélaga - 2025100192
Lagðar fram til kynningar niðurstöður Gallup um þjónustu sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
Margrét og Hafdís yfirgáfu fund kl. 9.00.
Gestir
- Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs - mæting: 08:40
- Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - mæting: 08:40
- Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:40
3.Fiskeldissjóður - umsóknir 2026 - 2026020020
Lagt er fram minnisblað Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra á umhverfis- og eignasviði, dags. 3. febrúar 2026, þar sem farið er yfir skilyrði Fiskeldissjóðs og fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Jafnframt er lögð fram auglýsing sjóðsins með upplýsingum um skilyrði úthlutunar. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir þeim verkefnum á fjárhagsáætlun sem uppfylla skilyrði sjóðsins og teljast styrkhæf. Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að sækja um styrk til Fiskeldissjóðs fyrir þessi verkefni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma umsóknum vegna verkefna í minnisblaði í viðeigandi ferli, utan móttökuhúss.
4.Varmadælur og orkusparnaður - 2021100106
Lögð fram til kynningar tvö minnisblöð Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 5. september 2025 og 24. febrúar 2025, þar sem farið er yfir rauntölur og ávinning í orkusparnaði orkufrekra mannvirkja.
Lagt fram til kynningar.
5.Sjávargata 14, Þingeyri Óleyfisframkvæmd - 2023080028
Á 1352. fundi bæjarráðs þann 15. desember 2025, var lagt fram erindi Wouter Van Hoeymissen, dags. 9. desember 2025, þar sem hann óskar eftir niðurfellingu dagsekta vegna óleyfisframkvæmda við Sjávargötu 14 á Þingeyri. Jafnframt lagt fram minnisblað Kristjáns Svans Kristjánssonar, byggingarfulltrúa, dags. 11. desember 2025, vegna málsins. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Er málið nú lagt aftur fram ásamt minnisblaði Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 6. febrúar 2026, varðandi næstu skref.
Er málið nú lagt aftur fram ásamt minnisblaði Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 6. febrúar 2026, varðandi næstu skref.
Bæjarráð samþykkir tillögu samkvæmt minnisblaði.
Axel yfirgaf fund kl. 09:17.
6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - verkefni sveitarfélaga - 2026010014
Lögð fram umsagnarbeiðni úr samráðsgátt stjórnvalda, dags. 3. febrúar 2026, þar sem innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 27/2026, "Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga". Frestur til að að senda inn tillögur og ábendingar er til og með 10. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.
7.Hafðu áhrif - taktu þátt Átak til hvatningar framboða - 2026020076
Lagt fram til kynningar erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 5. febrúar 2026, varðandi átka til hvatningar framboða til sveitarstjórnarkosninga.
Lagt fram til kynningar.
8.Trúnaðarmál fjárfestingarmál - 2026010261
Trúnaðarmál lagt fyrir bæjarráð.
Trúnaðarmál kynnt fyrir bæjarráði.
9.Mánaðaryfirlit launakostnaðar 2026 - 2026020074
Lagt fram til kynningar minnisblað Helgu Sigríðar Hjálmarsdóttur, launafulltrúa, dags. 5. febrúar 2026, um launakostnað fyrir janúar árið 2026.
Lagt fram til kynningar.
10.Ársskýrsla 2025 - Slökkvilið Ísafjarðarbæjar - 2026020045
Lögð fram til kynningar Ársskýrsla slökkviliðs Ísafjarðarbæjar 2025.
Bæjarráð vísar ársskýrslu slökkviliðs Ísafjarðarbæjar 2025 til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd.
11.Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði - fundargerðir stjórnar 2026 - 2026020075
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar 2026 stjórnar rekstrarfélags Stjórnsýsluhússins á Ísafirði, en fundur var haldinn 21. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
12.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - fundargerðir og fleira 2026 - 2026020030
Lögð fram til kynningar fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, en fundur var haldinn 21. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:48.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?