Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 4

Dagbók bæjarstjóra 11.-17. júlí 2026

Löngu áður en kosningabaráttan byrjaði vorum við hjónin búin að bóka okkur ferðalag til Englands og lauk því á fimmtudaginn var.

Fjölbreytt menning tók á móti mér þegar ég kom heim. Fyrst djasstónleikar í Edinborgarhúsinu og svo opnun ListaVestursins á Flateyri. Þar var margt um manninn og verkin fjölbreytt; meðal annars samsýning Gunnars og Rannveigar Jónsbarna með verkum föður þeirra heitins, vatnsorgel Krassasig, tónlistarflutningur Jóels Pálssonar og Einars Arnar, og málverkasýning í gömlu slökkvistöðinni.

Veðrið á laugardeginum var ekki sem best, og því féllu niður stórir póstar í dagskrá Litla Dýra. Pálínugrillið um kvöldið var svo flutt inn í skemmu, en þá hafði að vísu ræst úr veðrinu. Ég kom og leit þar við spjallaði við aðalsprauturnar, systkinin Ástvald og Moniku. Við áttum gott spjall þar sem eldmóðurinn var augljós.

Á þriðjudag kom Árni Aðalbjarnarson bakari í heimsókn. Hann er einn mesti áhugamaður um héraðssögu í firðinum og drífandi í áhuga sínum. Honum hefur Martinus Simson verið hugleikinn, en Árni vann hjá honum sem unglingur við skógrækt og fleira.

Simson er hjúpaður nokkrum ljóma enda var hann danskur, sirkuslistamaður, tannaflraunamaður, skógræktarfrömuður, ljósmyndari og kajaksmiður svo fátt eitt sé nefnt. Eftir hann liggja meðal annars stytturnar tvær við Sundhöllina, sjálfsmynd í Safnahúsinu og Simsonsgarður í Tungudal. Árni ræddi við mig um ýmsar hugmyndir þessu tengdar. Ég benti honum á að Ísleikhúsið er að undirbúa sýningu um Simson sem fer fram í ágúst. Það er greinilega Simsons-vakning í bænum.

Í lok vinnudags skaust ég yfir í Bastillufögnuð sem Elísabet Gunnarsdóttir ræðismaður hefur haft að sið að bjóða til 14. júlí ár hvert. Þar er þjóðsöngur Frakka sunginn og léttar veitingar í frönskum stíl.

La Marseillaise er snúnari í flutningi en flest önnur lög sem ég hef reynt mig við.

Á miðvikudag hringdi ég um borð í Álfsnesið, sem liggur nú við Ásgeirsbakka, og bauð mér í kaffi. Þeir eru að fara í tveggja vikna stopp núna en taka svo upp þráðinn eftir verslunarmannahelgi. Skipið hefur komið til að dýpka fyrir okkur í fjögur ár, og í þessari umferð er verið að dýpka og breikka innsiglinguna inn sundin svo skip komist klakklaust. Með þessu stækkar byggingaland á Suðurtanga. 55 þúsund rúmmetrar verða teknir upp í þessari umferð og eru 40 þúsund komin upp nú þegar.

Skipstjórinn er Ísfirðingurinn Óttar Jónsson, kallaður Láki. Hann sagði mér frá því hvernig dýpkun gengur fyrir sig og hvernig þetta hefur gengið síðustu ár. Þegar ég spurði hann hvaða sjónarmið dýpkunarsérfræðingar teldu að bæjaryfirvöld ættu að hafa í huga var honum mikilvægi vandaðs undirbúnings hugleikið. Það er óhætt að taka undir það.

Um kvöldið var ég beðinn um að opna Hornstrandir film festival sem hafði átt að hefjast í Aðalvík en var flutt í Sigurðarbúð á Ísafirði vegna veðurs. Í opnunarávarpinu rakti ég nokkrar sögur af Hornstrandaferðum mínum í gegnum tíðina (þar á meðal þá sem ég fer í á laugardaginn kemur), hvað er líkt og ólíkt sitthvoru megin Ísafjarðardjúps og þverpólitíska einurð bæjaryfirvalda að standa vörð um friðlandið. Þau komust svo daginn eftir norður, en það hefur verið mikil brælutíð í sumar, ferðaþjónum og ferðamönnum til armæðu.

Verðbólgan til vandræða

Á fimmtudag var síðasti bæjarráðsfundur fyrir sumarfrí, en hefð er fyrir því að fella niður þrjá bæjarráðsfundi í kringum verslunarmannahelgi nema eitthvað sérstakt komi upp.

Afgreitt var að taka tilboði í byggingu móttökuhúss fyrir skemmtiskipafarþega sem reist verður á höfninni og verður tilbúið næsta sumar. Það bætir aðkomu og starfsaðstæður talsvert.

Verri fréttir voru í ársfjórðungsuppgjörinu. Útsvarstekjur eru undir áætlun, þó þar geti seinni helmingur ársins komið betur út, en stóri skellurinn er að sjá verðbólguna. Bærinn gerði ráð fyrir 3,2% verðbólgu, eins og opinberir greiningaraðilar höfðu ráðlagt við gerð síðustu fjárhagsáætlunar. Verðbólgan er þegar orðin 3,8% það sem af er ári. Þrátt fyrir markvissa lækkun skulda hlýst af þessu talsverður kostnaðarauki í fjármagnskostnaði sem mæta þarf með einhverjum hætti og fékk ég heimaverkefni að gera tillögur að aðhaldsaðgerðum.

Að því loknu hélt ég áfram að heimsækja stofnanir bæjarins, en fyrir hádegi hitti ég Sigurð slökkviliðsstjóra og eftir hádegi Grétar Helgason forstöðumann íþróttamannvirkjanna á Ísafirði, Flateyri og Suðureyri.